Ísland er eins og Ísrael – við hættum að vera þjóð ef við töpum þessari baráttu

frettinGústaf Skúlason, Viðtal6 Comments

Gústaf Skúlason skrifar:

Frá kuldanum í Svíþjóð til sólskinsins á Spáni náðist tal af þeim góða manni og öflugu rödd í þjóðfélagsumræðunni Jóni Magnússyni hæstaréttarlögmanni sem er staddur á Spáni. Hann brást vel við beiðni um að tjá hug sinn varðandi það neyðarástand sem er að skapast í málefnum hælisleitenda á Íslandi. Ekkert lát er á innflutningi slíkra og innviðir landsins komnir að þolmörkum segir Jón og vísar til sveitarstjórnarmanna og fjölmiðla á Íslandi. Jón Magnússon ber Ísland í hjarta sínu og segir, að stjórnvöld verði að bregðast skjótt við af festu og spyrna við fótunum svo innflytjendamálin fari ekki úr böndunum.


Jón Magnússon.

Jón Magnússon hefur yfirgripsmikla reynslu af vettvangi stjórnmálanna allt frá æskuárum. Hann var m.a. formaður Stúdentaráðs, sat í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1973–1981, var formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna Reykjavík og formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Hann var einnig í þjónustu almannahagsmuna sem formaður Neytendasamtakanna og Neytendafélagsins á höfuðborgarsvæðinu. Að auki hefur hann verið þingmaður fyrir Frjálslynda flokkinn og Sjálfstæðisflokkinn og var formaður þess fyrrnefnda um tíma.


„Góða fólkið“ vill ekki heyra að hjálpin verður hundraðfalt stærri hjá viðkomandi í stað þess að vera sóttir til Íslands

Hælismálin eru í brennidepli um þessar mundir. Ekki síst eftir gosið í Grindavík, því í ljós hefur komið að peningar hafa verið teknir úr viðlaga- og hamfarasjóðum og eytt í hælismál og gæluverkefni eins og montfund með ESB í Hörpu í fyrrasumar. Jón Magnússon segir að núna eigi að flytja inn fleiri hælisleitendur og ríkissjóður hafi verið rekinn með tapi að undanförnu og því eigi að taka lán til að greiða uppihald fyrir hælisleitendur á Íslandi sem komandi kynslóðir þurfa að borga fyrir. Jón Magnússon bendir á, að bruðlið einkennist einnig af því, að margfalt minni hjálp verði úr peningunum, þegar hælisleitendur eru sóttir til Íslands heldur en ef aðstoð yrði send til þeirra heima, þar sem við verður komið. Þá margfaldist hjálpin allt að 100 sinnum. Hann skrifar á blog.is:

„Hvar á að taka þá fjármuni, þegar óráðsstjórnin sem nú situr hefur rekið ríkissjóð með bullandi halla undanfarin ár auk þess að stela peningum og tæma þá hamfara- og neyðarsjóði sem ákveðnar og jafnvel markaðar skatttekjur hafa runnið til. Þeir sem þannig hafa ráðslagað verða að taka út sína refsingu í næstu kosningum.“

Þeir sem styðja Hamas geta gjarnan farið til Gaza

Umræðan barst að þeirri íhlutun sem á sér stað á Austurvelli, þegar Hamas-sinnar opna tjaldbúðir og flagga með palestínskum fána. Heimta þeir innflutning fjölskyldumeðlima sinna til Íslands og fleiri Hamas-liða og spyrja má til hvers? Nýlega flutti lögreglan Ísis-liða frá Akureyri og Jón segir að glæpaklíkur séu komnar til landsins og valdi spjöllum. Tilfinningarnar komu fram, þegar hann minntist hinnar svívirðilegu og óskiljanlega hrottafengnu árásar Hamas á Ísrael 7. október s.l. „þar sem þeir meira að segja voru að steikja ungabörn lifandi.“

Jón segist lítt skilja stuðning fyrir slíku á Íslandi og mættu þeir sem styðja Hamas gjarnan fara til Gaza. Sem mark um ofstæki vinstri manna, þá nefndi Jón nýleg skrif Bjarna Benediktssonar, sem gerði athugasemdir við tjaldbúðir fyrir framan alþingishúsið á milli hússins og styttu sjálfstæðisforingjans Jóns Sigurðssonar. Segir Jón skrif utanríkisráðherrans hafi verið stillt mjög í hóf en samt heyrðust væringjar og hróp til stuðnings töku Hamasliða á Austurvelli sem margir telja sameiginlega útistofu þjóðarinnar.

Ástandið á Íslandi var líka sett í samhengi hluta á alþjóðavettvangi þar sem þeir ofsaríku hafa hóað sér saman til að taka völd af þjóðum og einstaklingum. Þar fer sjálfur forsætisráðherra Íslands í fararbroddi.

Smelltu á spilarann hér að neðan til að hlýða á umræðuna. Þar fyrir neðan er viðtal við Jón Magnússon frá Youtube í sambandi við bókun 35:

6 Comments on “Ísland er eins og Ísrael – við hættum að vera þjóð ef við töpum þessari baráttu”

  1. Merkilegt hvernig reynt er að sverta saklausan almenning og segja alla Palestínsku íbúana vera Hamas liða.
    Þótt það séu margir andlega veikir andlega og hryðjuverka o-f-b-e-l-d-i-s sinnar í hópum hér á Íslandi sem segja sig vera að berjast fyrir réttu geng röngu undir nafninu líf án ofbeldis og Öfgar þá er það ekki allar konur hérlendis sem aðhyllast ofbeldi og öfga, ekki frekar en 2,5 milljón manns á Gasa eru ekki Hamas liðar.
    Jón er greindur maður og mælir oftar rétt af skynsemi en stundum virðast skrúfunar skrolla aðeins þegar ýjkunar og meðvirknin tekur yfir.

  2. Jón is correct in his assessment.

    To add – There is no earthly reason for Iceland to get involved in the matters of Palestine. None. Zip. Nada. Núll. There are killings and displacement of humans happening every single day in places other than Palestine. You don’t hear about it because the media is only obsessed with Israel. The world is a messy, brutal place. As a tiny nation, Iceland is not going to matter in the resolution of complex problems elsewhere. It is pure self-conceit on the part of some Icelanders to think that Iceland has a say or sway outside of its borders.

    Iceland’s best course is to mind its own matters. Let the world take care of itself. The government of Iceland is elected to serve the interests of Iceland and Icelanders, not to worry about Gaza.

  3. Ég get nú ekki sagt að hann Jón Magnússon sé greindur maður, hann er meira svona blindur á flokkinn sinn, enn það er magnað hjá þér Gústaf Skúlason að veita manninum svona mikla upphafningu fyrir ekki neitt?

  4. Mér finnst mjög leiðinlegt að sjá hve margt eldra fólk er gyðingahatarar. Daníel Ágúst, Páll Óskar osf.

    Það eru líklega yfir 10.000 hard core gyðingahatarar á Íslandi. Þetta fólk gæti náð þremur mönnum á þing. Þá er ég að vitna í lista sem var í gangi nýlega á island.is.

    Mér finnst að fólk sem að þekkir rétta sögu Ísraels beri skylda að svara lygum Hamas á Íslandi og leiðrétta það sem er rangt.

    Jón Magnússon er flottur og veit þetta. Við megum ekki láta illskuna sigra. Guð blessi Ísland og Guð blessi Ísrael.

  5. Það er merkilegt hvernig sumir hér skilgreina það sem þeir kalla gyðingahatur, það að gagnrýna áratuga kúgun og yfirgang Ísraels gegn Palestínu er ekki gyðingahatur eða stuðningur við afleiðingar þess sem hafa skapað þessi Hamas öfgasamtök

    Það er til hins vegar mikið til af blindu liði sem er að pissa í sig af aðdáun yfir Ísraelsríki og hugmyndafæði þess svona svipað og kanadýrkun okkar íslendinga.

  6. Hér er Jón að bera út lygar Ísraela rétt eins og Birgir. Staðreyndin er sú að það er haugalygi að Hama sliðar hafi „steikt ungbörn“. Það féll eitt ungbarn í þessari árás og það féll fyrir byssukúlu. Staðreyndin er sú að allir húsbrunarnir og allir bílabrunarnir voru afleiðing gagnárása Ísaela þar sem þeir skutu á húsin og bílana með Helfire flugskeytim frá Apache árásarþyrlum sínum og skutu einnig á hús með skriðdrekum. Hamas liðar brenndu enga. Það var Ísraelsher sem gerði það.

Skildu eftir skilaboð