Af hverju efast svona fáir um sturlun í Austurvegi …

frettinInnlendar2 Comments

Hallur Hallsson skrifar:

Það er ekki einfalt mál að vera gagnrýnandi og segja hluti sem ráðamönnum finnast óþægilegir. Lýðræðisleg samfélög þarfnast gagnrýni og verða að umvefja mismunandi skoðanir. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er nú á hingferð um landið, var á Akureyri um helgina. Ég sótti fundinn og átti ánægjulegar samræður við forystu flokksins og þingmenn. Ekkert þeirra lét gagnrýni mína hafa áhrif á viðmót sitt, sýndi kurteisi og virðingu. Sjálfstæðismenn sameinast um sömu gildi; kristið líf í ljósi, frelsi og lýðræði sem flokkurinn var stofnaður um. Nú eru erfiðar tímar. Samtíð okkar er andsnúin lífsgildum flokksins og eltir hóphyggju. Sá tími kemur að vindast snúast. Í tilefni að tvö ár eru liðin frá því styrjöld braust út í Evrópu vil ég enn árétta mínar skoðanir.

Tvö ár eru innrás Rússa í Úkraínu, tíu ár frá vestrænu valdaráni í Kænugarði stýrt af CIA úr gömlu kgb-byggingunni og ameríska sendiráðinu í samvinnu við úkranska nazista. Í framhaldi af því réðust stjórnvöld í Kænugarði með her á hendur eigin þegnum í A-Úkraínu; Donbass og Luhansk. Fasistar í Kænugarð höfðu bannað þegnum sínum að tala rússnesku, rækta menningu forfeðra sinna í bága við Helsinkiyfirlýsinguna 1975. Azov-nazistum var stefnt gegn óbreyttum borgurum. Nazistinn Stepan Bandera [1909-1959] er þjóðhetja úkra, hampað á torgum og götum, mærður í skólum. Vesturlönd vinna með nazistum, jafn og þétt eru mannréttindi skert á Vesturlöndum, Íslandi sem annars staðar.

Guðleysi í stað kristni

Þegar Rússar hrintu af sér guðleysi kommúnista 1991, tóku Vesturlönd upp guðleysi. Vesturlönd kváðust ekki ætla þumlung austur; Not an inch Eastwards en sviku það. Árið 1994 viðruðu Rússar inngöngu í Nato en neo-cons í Washington höfðu önnur áform, wefarnir í Davos véluðu og skipulögðu valdarán hinna ríku og voldugu. Mannkyni skal fækkað, millistétt eytt sem og óþarfa alþýðufólki. Brussel hóf útþenslu ESB til allra átta; pan-evrópskt ríki. Ekki leið á löngu þar til stríð geisaði á Balkanskaga, Kosovo var tekin af Serbíu; sjálfir þingvellir Serba. Loftárásir voru gerðar á Belgrad  árið1999. Pólland, Tékkland og Ungverjaland gengu í Nato sama ár. Árið 2001 var ráðist á Afganistan, svo Írak, Sýrland, Líbýu, Sómalíu, Yemen undir Bush og Obama. Árið 2004 gengu Búlgaría, Eistland, Lettland, Litháen, Rúmenía og Slóvakía í Nato. Á fundi í Búkarest 2008 var stefnan sett á Úkraínu og Georgíu í Nato og ESB. Þá sögðu Rússar nei við vestrænni útþenslu í eigin kartöflugarði en allt kom fyrir ekki. Árið 2016 reis bandarísk þjóð upp gegn Endalausum stríðum með kjöri Donalds Trump. Friður ríkti í veröld 2017-2021. Eftir valdaránið 2020; Coup d’Etat fór aftur í sama far þegar hinn seníli Joe Biden kom upp úr kjallaranum í Delaware. Rússland skyldi lagt að velli bútað í sundur, gerð að nýlendu gömlu nýlenduveldanna.

Skjáskot úr frétt mbl.is

Zelinski valdi stríð

Rússar fóru með her inn í Úkraínu 2022 og umkringdu Kænugarð. Friðarsamningar hófust í Istanbúl, Tyrklandi lágu á borðinu á útmánuðum. Í apríl fór Boris Johnson til Kænugarðs með boðskap stríðs ekki friðar. Zelinsky valdi stríð gegn einu helsta herveldi heims. Rússar hófust handa um að frelsa Donbass og Luhansk sem höfðu lýst sjálfstæði eftir valdaránið. Nú tveimur árum síðar hafa Vesturlönd tapað proxy-stríði sínu í Úkraínu sem er í upplausn. Allt að 15 milljónir flúnir, hálf milljón ungra hermanna fallnir, fimmtíu þúsund Rússar. Rússland er nú helsta efnahagsveldi Evrópu og mesta herveldi heims. Rússneskumælandi fólk mun fá skjól innan rússneska lýðveldisins. Biden veður nú á skítugum skónum um Persaflóa; gert loftárásir á Írak og Sýrland þar sem amerískt hernámslið pumpar sýrlenskri olíu úr  jörðu og flytur til þjófsnautar Evrópu. Vesturlönd eru siðferðilega gjaldþrota. Áfram er haldið að ala á ótta og hervæðingu Íslands sem Evrópu. Bandaríkin og Noregur voru bak við Nordstream mesta hryðjuverks í sögu veraldar; sterkar vísbendingar eru um að P8 þotan hafi hafið sig á loft frá Keflavíkurflugvelli áleiðis til Eystrasalts.

Af hverju efast svo fáir …

2 Comments on “Af hverju efast svona fáir um sturlun í Austurvegi …”

  1. Afþvi það hentar ekki heimsmynd fólks hér á landi sem er alið upp a vestrænum fréttamiðlum þar sem rússagrýlan er mötuð af áróðursmaskinu cia og mi6 sem eru fyrirbæri samtvinnuð stefnu stórfyrirtækja vestursins hvort sem það er bananaframleiðsla i Mið-Ameriku eða olia Mið-Austursins, einræði USA er að ljúka en þeir og bandamenn munu lîklega ekki gefa þau völd upp baráttulaust og heimurinn sjaldnar verið hættulegri en núna, Íslendingar gelta eins og Usa og Nato segja okkur að gelta og hamra a grýlunni sem aldrei fyrr…

  2. Þarf víst ekki að commenta neitt hérna.. Jón segir þetta alltsaman.

    Íslendingar er heimsk þjóð.. vantaði í þetta.

Skildu eftir skilaboð