Hallur Hallsson skrifar:
Halla Tómasdóttir útsendari hins ameríska útibús wefaranna í Davos hyggst taka húsfreyjuvald Bessastaða í skjóli kvenna elítu sem komið var á laggirnar fyrir 25 árum. Full ástæða er fyrir íslenska þjóð að átta sig á þungri undiröldu framboðs Höllu. Bakland Höllu er klíka í Samtökum kvenna í atvinnulífi sem komið var á laggirnar 1999 til þess að koma kvenfólki í stjórnir fyrirtækja með þvingunum. Kvennaklíkan klappaði ákaft og skríkti þegar Halla tilkynnti framboð sitt í Grósku enda kokteilboð á Bessastöðum í sjónmáli. Það er táknrænt að hvorki fáni né skjaldarmerki Íslands voru sjáanleg þegar framboðið var tikynnt.
B-team Amerískt útibú Davos
Halla er forstjóri B-Team útibús Davos í Ameríku. Hún talar fyrir Great Reset; hina miklu endurræsingu sem “... við þörfnumst svo; so badly,“ að hennar sögn.
Great Reset er valdataka hinna ríku og voldugu á Vesturlöndum. Halla Tómasdóttir talar fyrir friði en vinnur að stofnun alheimsstjórnar; “world governance“ sem stendur fyrir útþenslu stríðum Nato. Halla talar fyrir jafnrétti en vinnur að “reset“ hinna ríku og voldugu. Halla talar fyrir sjálfbærni en hér verður málið svart. Í samráðsgátt stjórnvalda liggja fyrir drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu sem færir ráðherra óhóflegar valdheimildir til upptöku lands bænda. Í Evrópu standa yfir víðtæk mótmæli bænda og sjómanna vegna sjálfbærni-stefnu útsendara hinna ríku og voldugu til valdatöku heimsins, fólks eins og Höllu Tómasdóttur.
Halla og Branson
Halla mælir fagurgala til þess að fela slóð sína í innsta hring wefaranna. Bretinn Richard Branson “contributor“ wefaranna í Davos stofnaði B-Team árið 2013, vinur Jeffrey Epstein líkt og margir hinna ríku og voldugu. Halla er útsendari Klaus Schwab í Davos stofnanda World Economic Forum. Íslenskt útibú wefaranna í Davos hér á landi er félagið Festa, sem vinnur að afsali fullveldis og grefur undan íslensku lýðveldi; íslenskri menningu, íslenskri tungu, íslenskri þjóð. Hinir ríku og voldugu vilja ekki jafnrétti heldur afsal auðlinda; orku, fiskimiða og stefna að vindmylluvæðingu. Af hverju halda menn að ríkasti maður Englands hafi keypt jarðir á Norð-Austurlandi sem nema stærð sautján Þingvallavatna?
Hér má lesa um, hvað býr að baki heimsmarkmiðum sameinuðu þjóðanna.
3 Comments on “Kolsvart elítu-framboð Höllu Tómasdóttur”
Þessir heimsku glóbalistar eru að taka seinasta örvæntingafulla dansinn, ekki svo langt í að þeir verði sennilega flestir í gitmo þar sem þeir eiga heima. Það er allavega nóg að gerast þar þessa dagana
Það er farið að ,,Halla“ á frelsi íslendinga !
Það á að leggja þetta fígúruembætti niður!