Hvað býr að baki Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna?

frettinKristín Inga Þormar, WEF3 Comments

Eftir Kristínu Þormar:

Mikið óskaplega líta heimsmarkmið glóbalistanna vel út. Þeir ætla að útrýma fátækt og hungri, auka jöfnuð og stuðla að friði í heiminum, tryggja okkur menntun, tryggja jafnrétti, passa að allir hafi aðgang að vatni og heilbrigðisþjónustu, og byggja sjálfbærar borgir og samfélög, svo eitthvað sé nefnt.

Heimsmarkmiðin 17

Þetta hljómar eiginlega of gott og fallegt til að vera satt, enda er það svo.

Hér má sjá frábæra yfirferð yfir markmið númer 13, aðgerðir í loftslagsmálum.

The Hard Truth About The United Nations Sustainable Development Goals
What Insane Sacrifices Are Required From You And Me And Every Person On The Planet To Meet Agenda 2030’s Goal 13?

Hér er önnur ekki síðri yfir markmið númer 2, ekkert hungur.
The Hard Truth About The United Nations Sustainable Development Goals: SDG 2 - Zero Hunger

Hér er yfirferð yfir hið göfuga markmið númer 1, að útrýma fátækt. Hlustið sérstaklega vel á lokaorðin.

The Hard Truth About The United Nations Sustainable Development Goals: SDG 1 - No Poverty

Fleiri umfjallanir um markmiðin þar sem þau eru skoðuð án alls fagurgalans um bjarta framtíð með blóm í haga má finna á netinu, en ég mæli sérstaklega með þessari grein sem skrifuð var af Mike Adams árið 2015 um þessi 17 markmið, þar sem hann útskýrir hvernig sérhverju þessara markmiða á að ná í gegnum miðstýrt stjórnvald, og í rauninni alræðisvaldi yfir heiminum.


Eins og sjá má hér á vefsíðu WEF.

The United Nations 2030 Agenda decoded: It’s a blueprint for the global enslavement of humanity under the boot of corporate masters

Mike segir: Þetta skjal lýsir hvorki meiru né minna en alþjóðlegri yfirtöku stjórnvalda á hverri einustu þjóð í heiminum. "Markmið" þessa skjals eru ekkert annað en dulmál fyrir fasistastefnu fyrirtækja og stjórnvalda sem mun fangelsa mannkynið í hrikalegri hringrás fátæktar á sama tíma og auðga öflugustu glóbalistafyrirtæki heims eins og Monsanto og DuPont.

Örstutt lýsing á áætlunum Sameinuðu þjóðanna, þýdd á íslensku af Björgu Sighvatsdóttur.

Því miður lést Rosa árið 2021, en hér má lesa meira um þessa merku baráttukonu.

Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun

Ríkisstjórn Íslands hefur tengt heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna inn í stefnur sínar og áætlanir til ársins 2030, (ársins þegar við munum ekkert eiga, og vera hamingjusöm).

Markmiðin sem gilda á tímabilinu 2016-2030 eru 17 talsins, með 169 undirmarkmið. Ákaflega vel útfært plan í ótal liðum.

Kunnuglegir aðilar úr Davos klíkunni

Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni var stofnuð fyrir 11 árum. Í janúar árið 2021 héldu þau ráðstefnu.

Yf­ir­skrift hennar var The Great Re­set eða Nýtt upp­haf í anda áherslna hjá leið­andi stofn­un­um eins og Al­þjóða­efna­hags­ráðs­ins (e. World Economic For­um) og B Team sem eru leið­andi í þeim umbreyt­ing­um sem þurfa að verða á við­skipta- og stjórn­ar­hátt­um á heimsvísu.

Þar ein­blín­dum við á að sú upp­bygg­ing sem blas­ir við okk­ur í kjöl­far af­leið­inga Covid-19 verði byggð á sjálf­bærni, þar sem við byggj­um upp at­vinnu­líf sem hug­ar að hag allra hag­að­ila.

  • Halla Tómasdóttir - forstjóri B Team
  • Nicole Schwab fram­kvæmd­ar­stjóri Nature Based Soluti­ons @World Economic For­um (dóttir Klaus Schwab) (Áherslan er mín)
  • Michele Wucker met­sölu­höf­und­ur og for­stjóri Gray Rhino & Comp­any
  • John McArth­ur for­stjóri mið­stöðv­ar um sjálf­bæra þró­un hjá Brook­ings stofn­un­inni
  • Sa­sja Beslik for­stjóri sjálf­bærra fjár­fest­inga hjá J. Safra Saras­in Bank

Eins og sjá má hér að ofan, þá er Ísland fullgildur aðili að aðförinni gegn mannkyninu núna, (sjá 5 mínútna vídeó um "The Great Reset" hér plús hlekki á fleiri vídeó), þessari svokölluðu endurræsingu eða Nýja upphafi eins og það er kallað hér.

Lesist: Aðförinni að gagnslausu súrefnisþjófunum sem eru fyrir viti firrtri elítu sem er núna í óðaönn við að endurskapa heiminn að eigin hugmynd, vill stjórna hver fær að lifa og hver eigi að deyja og fækka mannkyninu niður í "ásættanlegan fjölda".

Þetta fór í gang fyrir alvöru með þessum svokallaða "heimsfaraldri", og "bólusetningunum" í kjölfar hans.

Ein af aðgerðunum til að ná þessu fram er að WHO taki yfir stjórn á heilbrigðismálum heimsins.

Sjá einnig: The World Economic Forum’s Ten Creepy Goals

Heimsmarkmiðin líta afskaplega vel út á yfirborðinu, eiginlega allt of vel, en ef þið lesið og horfið á þetta efni sem ég hef sett hér inn, þá sjáið þið fljótt að þetta eru ekkert annað en fagrar umbúðir utanum illvirki gegn okkur "þessum óþörfu".

Ó borg mín borg....

Reykjavíkurborg, sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er búinn að keyra í þrot, vinnur að sjálfsögðu að þessum "háleitu markmiðum", enda má sjá það á þrengingu umferðargatna, þéttingu byggðar, borgarlínunni, grænum plönum og fleiru.

Á næstu sjö árum á að galdra fram úr tómum borgarsjóði einhverja tugi eða hundruði milljarða í þessi markmið, þannig að væntanlega verður seilst enn meira í okkar vasa.

Davos ráðstefnan byrjar 16. janúar 2023

Nú streyma glóbalistarnir ásamt ýmsum þjóðarleiðtogum til Davos á sína árlegu ráðstefnu um að halda áfram að ráðskast með örlög okkar hinna, og er nú haldin undir yfirskriftinni "Samstarf í sundruðum heimi".

3.000 útvöldum aðilum hefur verið boðið, og 5.000 hermenn munu gæta þeirra.

Á síðasta ári flugu 1.040 einkaflugfélar með þetta fólk sem vill "bjarga loftslaginu" með því að við hin hættum að fljúga og keyra bíla sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Þar að auki eigum við að fara að leggja pöddur okkur til munns.

Ég held að við getum öll verið sammála um nauðsyn þess að draga úr sóun og fara betur með umhverfið og það sem við eigum. Ég minnist þess þó ekki að hafa lesið mikið um alla milljarðana af plastgrímunum sem enda í sjónum með skelfilegum afleiðingum fyrir lífríki sjávar. Hvar er allt "græna" fólkið núna?

En að treysta þessum sturluðu illmennum fyrir því að "bjarga heiminum" er jafn gáfulegt og að treysta minki fyrir því að gæta hænsnahúss.

3 Comments on “Hvað býr að baki Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna?”

  1. Góð umfjöllun, nema hvað það vantar að upplýsa okkur um hverjir fara þangað frá Íslandi í þetta sinn:
    Davos-dúkkulísan ?, Dagur náttfari ? Heil sendinefnd ?…og hvernig er ferðast: á einkaþotu eins og allir hinir, eða með Play ?

  2. Hmm, grunsamlegt, skyldi leynigestum vera hleypt inn bakdyramegin?

    Fréttamaður sem er hagvanur í Davos, segir að gagnstætt fyrri árum, þá sjáist ekki nokkur hræða af ráðstefnunni á ferli utandyra og engir til þess að taka viðtal við nema fúlir heimamenn, sem eru fyrir löngu orðnir dauðþreyttir á þessu árlega stússi í þeirra bæ.

    En þetta er bara fyrsti dagur, og hann ætlar að láta vita ef ´standið breytist.

Skildu eftir skilaboð