Vinsæll NFL deildargreinandi látinn úr Covid

frettinErlentLeave a Comment

Hinn vinsæli NFL draumaliðsdeildar greinandi, Mike Tagliere er látinn af völdum Covid-19. Eiginkona hans tilkynnti um andlátið á twitter sl. laugardag.

 „Með sorg í hjarta tilkynni ég að Mike Tagliere, lést með friðsælum hætti í gærkvöldi. Við erum svo þakklát fyrir allan stuðning ykkar og bænir sl. vikur. Tag var ykkur öllum svo þakklátur, meira en þið getið ímyndað ykkur. Þetta skrifaði hann fyrir sex árum og finnst mér það eiga vel við."

 

Mike tilkynnti um veikindi sín fyrir nokkrum vikum og sagðist vera mikið veikur. Hann tók fram að hann væri fullbólsettur.

Skildu eftir skilaboð