Tónlistarmaðurinn Birkir Blær Óðinsson sigraði í kvöld í sænsku Idol söngkeppninni eftir æsispennandi og glæsilega úrslitakeppni. Keppnin var sýnd á sænsku sjónvarpsstöðinni TV4.
Birkir og Jacqline Mossberg Mounkassa kepptu til úrslita í kvöld og þóttu bæði standa sig afar vel.
Dagskrá útsendingarinnar var þéttpökkuð af fyrirmyndarflutningum. Saman tóku þau lagið The Days eftir plötusnúðinn og tónlistarmanninn Avicii sem lést árið 2018.
„Ég er svo þakklátur öllum þeim sem kusu Íslending. Ég er svo stoltur,“ sagði Birkir Blær við fjölmiðla eftir að úrslitin höfðu verið kunngjörð.
„Ég hef lært svo svo mikið á þessu, ekki síst nýtt tungumál. Þetta er draumur sem hefur ræst,“ bætti hann við.
Þá segir hann keppinaut sinn, Jacqueline Mossberg Mounkassa, vera frábæran listamann og að hann hafi haldið að það yrði hún sem myndi fagna sigri að keppni lokinni.
Keppendurnir fluttu þrjú lög til að heilla sænska kjósendur. Fyrsta lag Birkis Blæs var All I Ask eftir Adele, annað var It's A Man's World með James Brown og loks frumsamda lagið Weightless sem keppendurnir fluttu báðir.
Allt ætlaði um koll að keyra á skemmtistaðnum Vamos í miðbæ Akureyrar þegar tilkynnt var að Akureyringurinn Birkir Blær Óðinsson hafi sigrað sænska Idolið árið 2021. Myndband af fagnaðarlátunum má sjá í spilaranum hér að neðan á Vísir.