Nýgengni smita er í dag 27. desember rúmlega 50% hærri hjá fullorðnum fullbólusettum en óbólusettum, samkvæmt nýjum tölum á Covid.is
Tekið er tillit til mismunandi stærða á hópunum.
Þetta þýðir að í dag eru fullbólusettir fullorðnir yfir 50% líklegri en óbólusettir til að greinast smitaðir.
Yfirstandandi frelsisskerðingar yfirvalda og mismunun óbólusettra á því við engin rök að styðjast, er óhætt að segja. Þvert á móti, og verður því að teljast vonbrigði fyrir marga sem undirgengist hafa bólusetninguna hversu slök virkni er í bóluefnunum. Þeir bólusettu virðast illa varðir og því varla hægt að tala um mótefni gegn sjúkdómnum, miðað við nýjustu tölur.
5 Comments on “Nýgengni smita 50% hærra hjá fullbólusettum”
Höfundi finnst ekki vert að nefna að þegar litið er til sjúkrahúsinnlagna eru óbólusettir ríflega 85% þeirra sem þurft hafa innlögn milli 1. og 26. Des.
Segjum að það séu 1000 manns, 800 bólisettir og 200 óbólusettir. Ef 30 bólusettir veikjast og 20 óbólusettir eru 50% fleiri bólusettir sem veikjast mikið rétt.
Ef skoðaðar eru líkur á að sýkjast eru þær 3.75% hjá bólusettum og 10% hjá óbólusettum.
Það er betra að kunna ögn í tölfræði þegar gögn eru sett fram. Þarf ekki mikið, bara pínu pons.
Já hvað gagnar það óbólusettir smitast og veikjast meir ef svo heildaráhrifin verða neikvæðari til lengri tíma? https://frettin.is/2022/01/01/enginn-avinningur-bara-ahaetta/
Kristinn
Raunverulegar tölur eru 27.des 739 smitaðir, 156 óbólusettir og 583 bólusettir s.s. 21% óbólusettir og 79% bólusettir. Þar fyrir utan er mikið um að börn séu að smitast sem eru óbólusett sem breytir hlutföllum óbólusettum í óhag.
Ein af aðalrökfærslum mRNA-sprautu-fíkla fyrir nauðungarsprautu að hætti Hitlers, handa ósprautuðu fólki, er að sjúkrahúsin eru yfirfull af óbólusettum, sem þessi grein sýnir að er rangt. Hlutföll skipta ekki máli í því samhengi, því meirihluti þeirra sem leita á sjúkrahús, eru fullbólusettir.
Það er heildarfjöldi sjúklinga sem skiptir máli, en ekki hversu stórt hlutfall þeirra er clean eða á nálinni .
Það er samt athyglisvert að stór fjöldi ósprautaðs fólks er á gjörgæslu, það er væntanlega með delta afbrigðið sem hið væga ómíkrón er að leysa af.