Kristín Þormar skrifar:
Alma Möller landlæknir, sem hefur ekki sést lengi er núna skriðin upp úr holunni sinni með nýjustu tölurnar um andlát sem hún segir vera vegna veirunnar ógurlegu.
Hvernig getur hún sannað þetta, voru þessir 400 einstaklingar krufnir?
Fyrst voru tölurnar c.a. 200, en nú allt í einu 400. Gleymum því ekki að hún sat lengi á 2.000 tilkynningum um aukaverkanir árið 2021!
Gleymum því ekki heldur að hún forðaði aldraðri tengdamóður sinni frá sprautunum í ársbyrjun 2021, og þegar það spurðist út voru starfsmenn hjúkrunarheimilisins teknir í þriðju gráðu yfirheyrslur og að lokum var saklausum hjúkrunarfræðingi sagt upp störfum þar.
Áttu "bóluefnin" (sem eru ekki bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til) ekki að bjarga okkur út úr "heimsfaraldrinum"?
Vonandi fer fólk að sjá í gegnum þennan rakalausa lygaþvætting, eitursprauturnar skaða og drepa, en bjarga fáum eða engum lífum, eins og sjá má örfáar sannanir um hér:
- Dr. Michael Yeadon: Every Single Thing We Were Told Is a LIE
- More vaccines -> higher infant mortality
- Over 96 Canadian children ages 2-19 have died suddenly or unexpectedly in the past 3 months - a warning call for Canadian parents
- New Japan study: Pfizer COVID-19 mRNA vaccine spike protein found in Herpes Zoster (shingles) lesions
- URGENT: mRNAs jabs may have caused tens of millions of serious new health problems worldwide, a huge peer-reviewed study shows
- CDC Spreads False Information About COVID-19 Vaccine Safety - Rétt eins og Alma, Þórólfur, Ragnheiður, Kári og fleiri!
Afsakið, en ég get bara ekki setið á mér þegar ég sé svona rakalausar lygar, og ég er búin að skrifa ótal blogg undanfarin tvö ár sem sanna mál mitt.
Farið að hugsa út í það hvers vegna nákvæmlega sama handriti og hræðsluáróðri var beitt í öllum löndunum sem gengu hvað harðast fram í að blekkja fólk í þessar sprautur.
Sömu löndum og ætla að samþykkja alræðisvald glæpastofnunarinnar WHO yfir heilbrigðismálum heimsins.
2 Comments on “Eru þetta góð meðmæli með „bóluefnunum“?”
Kristín er mergjuð og búin að vera hetja á veirutímum. Takk fyrir endurbirtinguna.
Ég tek undir hvert einasta orð sem Kristín skrifar hér.