Eftir Hall Hallsson:
Svona afvegaleiðir Washington bandarísku þjóðina. Demókratinn Brad Sherman þingmaður frá Kaliforníu spurði Anthony Blinken utanríkisráðherra hvort Alríkisstofnanir hefðu verið á bak við hryðjuverkið á Nord Stream gasleiðslunum í Eystrasalti. Sherman spurði: „Last September the Nord Stream pipeline was blown up. You are now in a Formal Setting. Can You Assure the World that no Agency of the US Government Blew Up Those Pipelines or Facilitated the Act." Blinken svaraði að bragði: „Yes I can." Sherman þakkaði ráðherranum svarið. Blinken laug ekki en spurningin var samin til þess að afvegaleiða bandarískan almenning og raunar veröldina alla. Svokallaðar þriggja stafa stofnanir; CIA, FBI, NSA og rest komu ekki að hryðjuverkinu í Eystrasalti, útrætt mál eða er ekki svo?
STRÍÐSAÐGERÐ ACT OF WAR
Lítum nánar á. Enginn hefur haldið því fram það ég veit að CIA, FBI eða NSA hafi verið á bak við hryðjuverkið í Eystrasalti sem skilgreint er stríðsaðgerð; Act of War. Allra síst hélt Sy Hersh frægasti blaðamaður Bandaríkjanna þessu fram þegar hann afhjúpaði leyniaðgerð bandarískra stjórnvalda í Eystrasalti í febrúar síðastliðnum. Hersh hefur ítrekað áréttað frétt sína í fjölmörgum viðtölum.
Kafarar Köfunar- & björgunarmiðstöðvar Bandaríkjanna í bænum Panama City í Flórída hafði verið að verki. Þeir hafi komið sprengjum fyrir við Nord Stream leiðslurnar í júní 2022 í samvinnu við norsku leyniþjónustuna á BALTOP22 æfingu Nato í Eystrasalti. Ef hinir frægu US Navy Seals úrvalssveit kafara í bandaríska flotanum hefðu verið sendir í Eystrasaltið þá hefði Joe Biden orðið að fá heimild þingsins fyrir hryðjuverkinu. Þingið hefði orðið að samþykkja árás á annað ríki; Act of War. Aðgerðin var ekki plottuð af CIA né NSA heldur Jake Sullivan öryggisráðgjafa Biden úr Eisenhower byggingunni í Washington gegnt Hvíta Húsinu við Pennsylvaníu Avenue. Kafararnir frá Flórída komu sprengjum fyrir við leiðslurnar, þrjár af fjórum leiðslum voru sprengdar þremur mánuðum eftir Baltop22, eða þann 26.09.2022. Eitthvað fór úrskeiðis við fjórðu leiðsluna í sænsku lögsögunni. Ég hef bætt við: P8 þota frá Keflavíkurflugvelli var yfir gasleiðslunum í sex tíma um nóttina fram á morgun 26.09.2022 þegar sprengjurnar sprungu. Eftirlitsstöð Nato á Borgundarhólmi fylgdist þá eins og alltaf með öllu í, á og yfir Eystrasalti alla leið inn í Rússland.
Dönsk stjórnvöld vita allt um Eystrasaltið, en hrista tómt höfuð. Nato uppljóstrari; svokallaður whistleblower hefur skýrt frá því að kafarar hafi komið með þyrlu frá Stokkhólmi til að kafa 80 metra niður að gasleiðslunum í sænskri lögsögu. Kafararnir frá Flórída sáu um leiðsluna í dönsku lögsögunni skammt undan Borgundarhólmi. Sænsk stjórnvöld hættu rannsókn en sendu götublaðið Expressen til þess að taka myndir af skemmdri gasleiðslu á 40 metra kafla. Engir aðrir voru á vettvangi. Í sömu viku og Blinken var í þinginu kom Pentagon með þá útgáfu að gasleiðslurnar hefðu verið sprengdar innanfrá og kenndi Rússum um.
BLINKEN FÉKK ÞÓ SPURNINGU
Þó vitnisburður Blinken hafi augljóslega verið til að afvegaleiða, þá alltént fékk hann spurningu í þinginu. Hvíta Húsið hafði neitað allri aðild að Nord Stream. Norska utanríkisráðuneytið hefur og neitað aðild. Í Bundestag hafa þingmenn AfD og Linke krafist rannsóknar á þætti Bandaríkjanna á hryðjuverkinu svo og hafa slíkar kröfur verið settar fram í Evrópuþinginu. Leiðtogi Evrópuandstæðinga í Parlement Français, Florian Philippot heldur því fram að Bandaríkin séu á bak við hryðjuverkið og krefst rannsóknar. Frakkland logar stafna á milli í uppreisn gegn Macron forseta. Eftirlaunadeilan er kornið sem fyllir mælinn. Frökkum finnst Macron staðfesta innræti sitt þegar hann laumaði lúxusúri í vasa í sjónvarpsþætti meðan Frakkland logar í óeirðum. Getur fólkið ekki bara borðað kökur?
FYRSTU MERKI UPPGJAFAR?
Yfir 200 þúsund Úkranar eru fallnir, 400 þúsund óvígir, 500 deyja á degi hverjum. Úkraínska hernum hefur verið gereytt. Indverska Hindustan Times skýrir frá viðtali Zelinsky við japanska fréttamiðilinn Yimouri að Úkraína geti ekki hafið vorsókn, þeir hafi hvorki vopn né skotfæri. Indverski miðillinn spyr hvort yfirlýsingin sé fyrstu merki uppgjafar.
ÞAU ÞEGJA ÖLL ÞUNNU HLJÓÐI
Það er sama hvort það er vestanhafs eða austan. Leiðtogar eru ekki í takti við þjóðir sínar, enda sitja þeir að svikráðum við fólk sitt. Þó yfirborðs umræða sé um hryðjuverkið, þá er alltént umræða víðast hvar. Alls staðar nema á Íslandi. Enginn þingmaður vogar sér í pontu til þess að ræða mesta mengunarhryðjuverk mannkynssögunnar. Þau þegja öll þunnu hljóði. Enginn þorir að ræða aðild Íslands að hryðjuverkinu í Eystrasalti, bara alls enginn. Hér er engin alvöru umræða, bara hatur og heift í garð Rússa, kallað á stríð og meiri vopn. Ég hef reynt að beina spurningum til Katrínar og Þórdísar en fæ engin svör. Líka til vina minna Alberts Jónssonar og Óla Björns án árangurs um stríðið. Hvergi er nein umræða um hina geigvænlegu mengun í Eystrasalti. Geigvænlegt magn CO₂ og metan slapp út í andrúmsloftið, 250 þúsund tonn af þungmálmum og þrávirkum eiturefnum þyrluðust upp, fiskar drápust og sjávargróður. Allt er umlukið þögn. Nei, það er annað sem er á huga þeirra. Þingheimur segir okkur að heimurinn sé að farast vegna hamfarahlýnunar. Ég og þú verðum að hraðspóla kolefnisjöfnun. Það á að kolefnisjafna og skattleggja andardrátt okkar. Það á að loka bankareikningum okkar ef þeim mislíkar skoðanir okkar. Hatursorðræða og upplýsingaóreiða er stimpill sem skellt er á fólk sem vill standa vörð um Ísland, íslenska menningu og tungu. Landamæri eru opin og stjórnlaus innstraumur fólks meðan frændur okkar hafa gripið í tauma. Innan fárra áratuga verður íslensk þjóð horfin og Ísland hérað í alheimsríki glóbalizta ef þingheimur fær að ráða. Svona er Ísland í dag.