Tucker og Pútín – gamla vinstrið og nýja

frettinErlent, Páll Vilhjálmsson1 Comment

Páll Vilhjálmsson skrifar:

Sjónvarpsmaðurinn Tucker Carlson staðfestir að hann fái viðtal við Pútín Rússlandsforseta. Það yrði fyrsta viðtal vestræns fjölmiðlamanns við Pútín frá upphafi Úkraínustríðsins fyrir tveim árum.

Vinstrimenn froðufella vegna viðtalsins, segir í bandarískum spjallþætti. Vestræna vinstrið vill slaufa Pútín, í mesta lagi sýna hann sem óalandi og óferjandi. Alls ekki virða hann til viðtals. Fyrir sjö árum átti leikstjórinn Oliver Stone viðtal við Pútín og það þótti ekki vel gott. Núna er forseti Rússlands ótækur í betri stofur vinstrimanna. Raunsæir hægrimenn eru aftur ekki frábitnir að heyra sjónarmið Kremlarbónda.

Vinstrimenn á vesturlöndum urðu ekki and-rússneskir fyrr en um miðjan síðasta áratug. Á dögum kalda stríðsins var ekki um að ræða almenna andúð vinstrimanna á Sovétríkjunum. Kratavinstrið galt varhug en kommar sýndu meiri skilning, og lengi vel aðdáun. Eftir fall járntjaldsins breyttist það ekki. Hægfara vinstrimenn höfðu samúð með erfiðu umbreytingaskeiði Rússlands og gömlu kommarnir bættu jafnvel í elsku sína á öllu rússnesku.

En um miðjan síðasta áratug verður gjörbreyting á afstöðu vinstrimanna. Ekki er hægt að kenna um valdatöku Pútín. Hann varð forsætisráðherra 1999 og skömmu seinna forseti. Í 15 ár létu vestrænir vinstrimenn sér vel líka Pútín.

Tvennar kosningar á vesturlöndum um miðbik síðasta áratugar framkölluðu gjörbreytta afstöðu vinstrimanna. Sumarið 2016 kusu Bretar úrsögn úr Evrópusambandinu, Brexit. Haustið sama ár fær Trump kjör sem forseti Bandaríkjanna. Í báðum tilvikum sveið vinstrimönnum sárt enda breyttist draumsýn í martröð á sex mánuðum. Alþjóðahyggjan, sem Sovétríkin stóðu fyrir, hafði fengið heimilisfestu í Brussel. Brexit og Trump eyðilögðu hugsjónina um vinstrikapítlískt alþjóðasamfélag.

Eftir kalda stríðið varð til óformlegt bandalag vinstrimanna og kapítalista, einkum nýríkra úr tölvu- og upplýsingatæknigeiranum. Helmingaskiptin gengu út á að vinstrimenn fengu menninguna en hægrimenn viðskiptin. Vinstrimenning er mjög hinsegin, eins og alþjóð þekkir; mörg kyn og frjálst valhopp úr einu í annað mannréttindi. Karl fyrir hádegi, kella síðdegis og sjötta kynið á morgun. Hægrimenn fengu í staðinn frjáls viðskipti. TTIP-fríverslunarsamningurinn milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins átti að verða gimsteinninn í krúnunni. Allt fór það í hundana með kjöri Trump, sem í ofanálag vill ekki transa börn. Helgispjöll að mati vinstrimanna.

Einhverjum varð að kenna um brostnar vonir og töpuð helmingaskipti. Vinstri- og frjálslyndum hægrimönnum var lífsins ómögulegt að skilja að almenningi fannst lítið til koma vinstrikapítalíska alþjóðaríkisins. Pútín var kennt um kosningaúrslitin beggja vegna Atlantsála. Allt kjörtímabil Trump 2017-2021 stóð yfir linnulaus áróður um að hann væri strengjabrúða Pútín. Varla voru kosningar haldnar í Vestur-Evrópu án þess að sá rússneski kæmi nærri, sögðu léttgeggjaðir vinstrimenn og fjölmiðlar þeirra.

Einhverjir myndu vilja bæta Úkraínudeilunni við sem ásteytingarsteini, ekki síst frá Krímtökunni 2014. En það er langsótt. Úkraína var hvorki hjartfólgin vinstri- né hægrimönnum fyrr en landið þótti þénugt til að berja á Pútín og Rússum.

Ferðalag vinstrimanna frá vinsemd í garð Rússa yfir í stækt hatur hefur minnst með Pútín og Rússland að gera. Vinstrimenn einfaldlega gengu af göflunum. Þeir sukku ofan í kynræn kjánapriksfræði annars vegar og hins vegar fíflagang um loftslagsvá. Völdu sér þar sem fyrirmynd aríska stúlku með fléttur, rétt eins og fylgismenn Dolla á þriðja áratug síðustu aldar. Siðblinda, sjálfselska og machiavellismi í einum hrærigraut. Eins og Karl gamli Marx sagði, sagan endurtekur sig, fyrst í búningi harmleiks síðan fáránleika.

Viðtal Tucker við Pútín verður fróðlegt.

One Comment on “Tucker og Pútín – gamla vinstrið og nýja”

  1. Vinstri-klikkhausarnir og valdaelítan, hið óheilaga hjónaband manndjöflanna. Yndislegt framtíð fyrir heiminn!

Skildu eftir skilaboð