Svíþjóð leggur niður frekari rannsóknir á hryðjuverkaárásinni á Nord Stream

frettinErlent, Gústaf SkúlasonLeave a Comment

Gústaf Skúlason skrifar:

Mats Ljungqvist saksóknari í Svíþjóð segir í tilkynningu, að rannsókn Svíþjóðar á árásinni á Nord Stream í Eystrasalti í september 2022 sé lokið.

Saksóknari heldur því fram að „málið varði ekki sænska lögsögu og því beri að leggja rannsóknina niður.“Gögn málsins hafa verið afhent Þýskalandi. Í fréttatilkynningunni segir:

„Megintilgangur frumrannsóknarinnar hefur verið að kanna hvort sænskir ​​ríkisborgarar hafi verið viðriðnir verknaðinn og hvort sænskt landsvæði hafi verið notað til að framkvæma verknaðinn og þar með átt á hættu að skaða sænska hagsmuni eða öryggi Svíþjóðar.“

„Frumrannsóknin hefur verið kerfisbundin og ítarleg. Meðal annars hefur mikill fjöldi skipahreyfinga verið greindur til að átta sig á hvað hefur gerst. Auk þess hefur farið fram umfangsmikil vettvangsrannsókn og nokkrar yfirheyrslur farið fram í málinu. Í ljósi þeirrar stöðu sem við búum við núna getum við fullyrt að málið varðar ekki sænska lögsögu.“

Að sögn ríkissaksóknara er rannsóknin komin á það stig að:

„Yfirvöld hafa góða mynd af atvikinu og ekkert hefur komið fram sem bendir til þess, að Svíar eða sænskir ​​ríkisborgarar hafi átt þátt í árásinni sem gerð var á alþjóðlegu hafsvæði.“

Í fréttatilkynningunni segir enn fremur:

„Saksóknari mun ekki, með vísan til þess trúnaðar sem enn ríkir, tjá sig frekar um málið.“

Strax í febrúar 2023 upplýsti hinn goðsagnakenndi bandaríski rannsóknarblaðamaður Seymour Hersh að Biden-stjórnin í Bandaríkjunum stóð að baki sprengjuárásarinnar á gasleiðslurnar. Vestrænir fjölmiðlar hengdu haus og þögðu um það og þegja enn.

Skildu eftir skilaboð