Helstu fjölmiðlar áfram í fangi hægláts andláts

frettinErlent, Gústaf SkúlasonLeave a Comment

Gústaf Skúlason skrifar:

Elon Musk tísti frétt á X þann 8. febrúar frá Press Gazette sem sýnir að almennir fjölmiðlar eru í fangi hægláts andláts.

Heimsóknir á síðu The New York Times dróst saman um 5% árið 2023. Washington Post missti 20%, MSN 25% og CNN 17%. Helstu fréttamiðlar töpuðu mikilli umferð til sín árið 2023.

Valkostamiðlar vaxa

Bandaríski valkostamiðillinn The Gateway Pundit hefur aðra sögu að segja. Heimsóknir á heimasíðu miðilsins jukust um 13% árið 2023 samanborið við 2022.. Enn á ný sló miðillinn nýtt met. Þeir skrifa á heimasíðu sinni:

„Þakkir til BESTU áhorfenda á internetinu! Gateway Pundit sló nýtt met árið 2023. 929.000.000 síðuheimsóknir árið 2023! Tæplega einn milljarður heimsókna!

„Þakka ykkur fyrir allan stuðning og það traust sem þið hafið á störfum okkar. Eins og þið vitið, þá hefur það ekki verið auðvelt. The Gateway Pundit er ein markvissasta vefsíðan í Bandaríkjunum í dag.“

Við segjum frá sannleikanum. Fjölmiðlar segja frá lygum. Og þeir hata okkur fyrir það.

Skildu eftir skilaboð