Pútín vinsæll – yfir 200 milljónir séð viðtalið

frettinErlent, Innlendar2 Comments

Gústaf Skúlason skrifar:

Þegar þetta er skrifað hafa yfir 186 milljónir manna horft á viðtal Tucker Carlsson við Vladimir Putin – bara á hans eigin X rás. Nú varar sænskur vísindamaður, sem er sérfræðingur í málefnum Bandaríkjanna, við því, að stuðningur við Pútín aukist jafnt og þétt í Bandaríkjunum. Bandaríkjamenn tengja nefnilega Pútín við andspyrnu gegn stjórnmálalegum rétttrúnaði.

Tucker Carlsson, fyrrverandi þáttastjórnandi Fox News, hefur fengið gríðarlega athygli síðustu daga, þegar hann fór til Moskvu og tók viðtal við Vladimír Pútín, Rússlandsforseta. Um miðjan laugardag kl. 15 höfðu meira en 186 milljónir manns séð viðtalið bara á X-síðu Tucker Carlson.

Nú varar Björn Ottosson hjá rannsóknardeild sænsku Allsherjarvarnarmálastofnunar við auknum vinsældum Pútíns í Bandaríkjunum. Ottosson segir við TV4, að Carlsson hafi fengið viðtalið vegna þess að hann „hafi afstöðu sem Pútín myndi vilja sjá að dreift yrði víða.“ Carlsson hefur áður gagnrýnt yfirþjóðlegar stofnanir og hernaðaraðgerði Bandaríkjanna í öðrum löndum. Ottoson sagði:

„Pútín segir að elítan steli peningum bandarískra skattgreiðenda til að heyja stríðið. Tucker skráir það líka. Það eflir hugmyndina. Sem er gríðarlega erfitt fyrir okkur hér í Evrópu.“

Pútín sífellt vinsælli

Ottosson hefur áhyggjur af því, að hugmyndir Pútíns nái meira fylgi í Bandaríkjunum. Hann segir að „hugmyndir“ hafi náð sterkari ítökum að undanförnu og að fólk hafi samúð með Pútín, vegna þess að því finnist hann standa á móti stjórnmálalegum rétttrúnaði.

Ottosson nefnir, að Pútín hafi notið meiri vinsælda í Bandaríkjunum á undanförnum árum – þrátt fyrir stríðið í Úkraínu. Samkvæmt könnunum sem Yougov gerði hafa vinsældir Pútíns aukist úr 15 í 26% á fjórum árum.

2 Comments on “Pútín vinsæll – yfir 200 milljónir séð viðtalið”

  1. Allir þeir sem setjast niður og kynna sér staðreyndir málsins sjá að valdaelítan á Vesturlöndum er á bak við stríðið í Úkraínu. Blessunarlegar er fólk byrjað að sjá í gegnum áróður valdhafanna og fjölmiðla þeirra.

  2. Það er alveg rétt hjá þér Brynjólfur, enn hins vegar er það sorgleg staðreynd að stuðningur við aðgerðir BNA og NATO eru hvergi meiri enn á Íslandi, ég er nokkuð viss um að hópurinn sem við teljums til er trúlega ekki stærri enn innan við 5% þjóðarinnar, þú þarft ekki nema að skoða stuðninginn á alþingi hann er 100% með Úkraínu, BNA og NATO það segir allt um hvað við eru rotin innan sem þjóð. Þetta er hyskið sem er fyrir valinu til að stjórna landinu fjölmiðlum og þar með umræðunni.

Skildu eftir skilaboð