Hinir fáu bjarga hinum mörgu

frettinHallur Hallsson, InnlentLeave a Comment

Hallur Hallsson skrifar:

Suðurnesjamenn eiga hinum fáu sem tengdu heitavatnslögnina mikið að þakka; raunar eiga Íslendingar allir hinum fáu nafnlausu allt að þakka. Vaskir menn unnu þrekvirki með lögnina eftir klúður almannavarna, lögreglu og HS Orku sem hefði getað lamað Ísland. Vonandi höfum við sloppið með skrekkinn en HS Orka þarf að svara fyrir margt; af hverju var viðvörunum Skúla Ágústssonar tæknifræðings 29. desember um hraunelfuna yfir Gríndavíkurveg á heitavatnslögnina ekki sinnt; af hverju er 30.000 manna byggð og flugvöllurinn KEF bara með eina heitavatnslögn frá Svartsengi; af hverju hafa lagnir ekki verið endurnýjaðar á meðan milljarðar hafa farið í arðgreiðslur; mbl skýrir frá að 1800 tonn af heitu vatni hafi verið flutt á tankbílum frá Hafnarfirði í 134 ferðum; trukkaveitan stóð fyrir sínu en hvorki RÚVStöð 2 sáu trukkana á Reykjanesbraut. Enn ein staðfesting á 4ða valdi ríkisins, enda paník í gangi og óvíst hvort hinir fáu fengju bjargað hinum mörgu. Ljóst er að skemmdir hafa orðið á mannvirkjum, eigum fólks og KEF. Benni pípari skýrir frá frostskemmdum í snjóbræðslum  og lögnum... Mun HS Orka bæta tjónSuðurnesjamanna?

Skúli Ágústsson v.m.

Ekki hlustað á Skúla...

Neyðarástand ríkti meðal 30 þúsund Suðurnesjamanna 10% Íslendinga eftir að glóandi hraunelfan rauf heitavatnsleiðsluna frá Svartsengi. Hætta á að tugþúsundir Reyknesinga yrðu flóttamenn í eigin landi ofan á 3.700 Grindvíkinga og þúsundir hælisleitenda. Skúli Ágústs­son bygg­inga­tækni­fræðing­ur varaði Al­manna­varn­ir, viðbragðsaðila og HS Orku við hraun­flæðinu sem tók í sund­ur Njarðvík­ur­lögn. Skúli benti á þetta í netpósti til al­manna­varna, HS Orku, lög­regl­unn­ar og Grinda­vík­ur­bæj­ar þann 29. des­em­ber síðastliðinn, samkvæmt frétt mbl. Hann hélt því fram að varnargarður utan um Svartsengi leiddi hraun að Grinda­vík­ur­vegi og gæti tekið heitavatnslögnina í sundur. Það raungerðist. Skúli hafði fyrst uppi varnarðarorð árið 2020. Jón Magnússon hrl skrifar um “vanrækslusynd stjórnvalda“. Í nóvember/desember stóð ríkissjóði/Almannavörnum til boða að kaupa Ketil; Boiler til varmaskipta sem hefði þjónað byggð á Suðurnesjum í neyðartilvikum. Því var hafnað. Heitavatnslagnir skreppa saman um meter á hvern kílómeter þannig að trukkaveitan var að halda lögninni heitri og er það vel. Heitavatnslagnir í KEF hafa nú þegar frostsprungið. Okkur er sagt í fréttum að „eitthvað sé til af efni,“ en Landsvirkjun heldur ekki varabirgðir svo þar er komið að tómum kofa. Tetrakerfið gaf sig, neyðarlínan gaf sig, rafmagnslaust varð í Vogum og Kársnesi Kópavogs.

Frétt mbl.is

Kreppur fyrri tíða sem hljóm

Kreppan 2008 og síldarhvarfið 1969 gætu orðið sem hjóm miðað við það sem framundan kann að vera hjá íslenskri þjóð. Skaftáreldar 1783 koma í huga. Vonandi raungerist hin svarta sviðsmynd ekki en við erum við upphaf eldvirkni á suð-vestur horni landsins sem síðast stóð frá 12. til 14 aldar.  Fólk hírist enn í köldum húsum því tíma tekur að ná upp þrýstingi á kerfið en vonandi gengur allt upp. Við verðum að vona hið besta. Verstu sviðsmyndir eru kolsvartar. Allt að 35 þúsund manns hefðu getað orðið flóttamenn í eigin landi með KEF lokaðan sem hefði þýtt niðurbrot samfélags.

Við gjöldum fyrir slóðaskap og aðgerðaleysi síðustu fimmtán ára. Þau sem stöðvað hafa uppbyggingu orkumannvirkja hafa ráðið landinu í hálfan annan áratug. Orkustofnun hefur í hálft annað ár stöðvað og tafið vinnsluholu Norðurorku í Eyjafirði. Þarf ég að útlista Hvammsvirkjun í Þjórsá? Hvalárvirkjun á Ströndum fyrir Vestfirði? Frá 2016 hafa Sjálfstæðisflokkur og Framsókn verið hækjur myrkraafla. Allt með ötulum atbeina vinstri villtra á RÚV og Stöð 2. Við búum í landi síljúgandi fjölmiðla fjórða valds ríkisins. Þrjú ár eru síðan Reykjaneseldar hófust og allan þennan tíma hefur blasað við augum aðeins ein heitavatnsleiðsla frá Svartsengi. Spyrjið. Hvers vegna? Af hverju ekki önnur lögn? Slegið var varnargarði um Svartsengi sem ef marka má tæknifræðinginn beindi hrauni að lögninni sem var óvarin. Kerfið er fálmandi og ónýtt. Eldgos hófst á Suðurnesjum 06:02, 08.02.24. Þegar glóandi hraunelfan fór yfir lögnina var umræða á Alþingi um galopin landamæri fyrir hælisleitendur frá Palestínu sem hafa verið flóttamenn í þrjár kynslóðir allar götur frá 1948 á framfæri alþjóðasamfélagsins. Krafan er loftbrú milli Íslands og Palestínu um Egyptaland í fyrsta gettó landsins.

Iðnaðarmenn vinna að gerð nýrra hitaveitulagna á Suðurnesjum.

Að víla og díla um mannslíf

Á Alþingi sakaði Þórhildur pírína Bjarna Ben um að „...víla og díla með mannslíf“ á sama tíma Suðurnesjamenn voru að missa heitt vatn. Pírínan sakaði Bjarna Ben um að stefna mannslífum í hættu. Þetta er ekki hægt að skálda. Á þremur árum; 2022, 2023 & 2024 á grundvelli opinna landamæra koma hingað um 15.000 hælisleitendur, líklega 30-50 milljarða árlegur heildarkostnaður. Hvern einasta dag hækka skuldir í útlöndum sem fólkið í landinu greiðir vegna stefnu Alþingis  um opin landamæri. Kerfið er sprungið en það virðist engu skipta á Alþingi. Þetta er eins og Neró með fiðluna í Rómaborg.

Læðst um laut, gil og götur

Ríkissjóður galopinn hælisleitendum meðan alþýða fólks, aldraðir og öryrkjar eiga ekki rödd en auðvitað hefur góða fólkið heimili sín harðlæst. Vinstri villtir þramma á Austurvöll með fána Palestínu og lýsa stuðningi við hryðjuverkasamtök Hamas sem heita því að útrýma gyðingum, kristnu fólki og gera konur jafnréttháar geitum. Þeir sem efast um opin landamæri eru uppnefndir rasistar. Dyr eru galopnar hælisleitendum sem streyma til landsins með opinn reikning á ríkissjóð; fólkið í landinu. Þau sem víla og díla hafa selt fullveldi í hendur erlendu valdi sem leiðir til niðurbrots Íslands eins og við þekkjum; íslenskrar þjóðar, tungu og menningar.  Þau læðast um laut, gil og götur eins og ræningjarnir í Kardemommubænum uppnefnandi óbreytt alþýðufólk rasista:

Við læðumst hægt um laut og gil
og leyndar þræðum götur,
á hærusekki heldur einn,
en hinir bera fötur ...

Nú fyllt við höfum fötu og sekk,
af fæðu, drykk og klæðum.
Og allt í lagi eins og ber,
en fátt um það við ræðum.

Iðnaðarmenn hafa unnið dag og nótt við gerð nýrra hitaveitulagna.

Skildu eftir skilaboð