Íslenski hælisiðnaðurinn: mútur og alþjóðlegir glæpir

frettinInnlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment

Páll Vilhjálmsson skrifar:

Tveir Palestínuarabar með íslenska búsetu voru handteknir í Slóveníu í tilraun til að smygla sjö hælisleitendum, fimm Sýr­lend­ing­um og tveim Egypt­um. Líklegur áfangastaður var Ísland með opin landamæri og aðgerðasinna sem taka lögin í sinar hendur. Stjórnvöld sjá í gegnum fingur sér af ótta við fjölmiðlafólk á bandi aðgerðasinna.

Palestínuarabarnir tveir höfðu íslensk vegabréf, segir í frétt slóvenska fjölmiðilsins, og kröfðust alþjóðlegrar verndar. Arabískir afbrotamenn í útlöndum nota íslensk vegabréf sem skálkaskjól.

Í gær var sagt frá mútugjöfum íslenska hælisiðnaðarins. Nú er það alþjóðleg glæpastarfsemi manna sem veifa íslenskum vegabréfum og flytja araba hingað, sennilega í nafni fjölskyldusameiningar. Allir arabar eru ein stór fjölskylda, segir í stefnuskrá Hamas.

Hvað hefur þjóðin gert til að verðskulda jafn ömurleg stjórnvöld og við sitjum uppi með í málefnum útlendinga?

Skildu eftir skilaboð