Myndskeið: Borgarastyrjöld innflytjenda frá Erítreu í Hollandi

frettinErlent, Gústaf Skúlason2 Comments

Gústaf Skúlason skrifar:

Innflytjendur frá Erítreu halda áfram borgarastyrjöld sinni um alla Evrópu. Á laugardaginn varð Holland fyrir barðinu á ofbeldinu. Í myndskeiðum sjást farandmennirnir kveikja í lögreglubílum, strætisvögnum og berjast við samlanda sína.

Á undanförnum árum hafa ofbeldisfullar óeirðir milli stríðandi fylkinga innflytjenda frá Erítreu blossað upp á mörgum stöðum í Evrópu: Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Þýskalandi og Bretlandi.

Á laugardaginn braust hið innflutta borgarastríð stríðandi fylkinga innflytjenda frá Erítreu út í Haag, Hollandi, þegar þeir sem styðja stjórn Erítreu og stjórnarandstæðinga skullu saman í bardögum. A.m.k. fjórir lögreglumenn særðust og kveikt var í mörgum ökutækjum, segir í frétt AP.

Hér að neðan er úrval myndskeiða frá borginni Haag á laugardaginn.:

2 Comments on “Myndskeið: Borgarastyrjöld innflytjenda frá Erítreu í Hollandi”

  1. Þetta er það sem stefna vinstri-klikkhausana í innflytjenda-og hælisleitamálum hefur í för með sér, og þetta mun ástand snarlega versna í komandi kreppu. Það er fyrirsjáanlegt.

  2. Þetta er einhverskonar fögnuður hjá þessu fólki í tengslum við hverjar kosningar eða pólitískar sveiflur í þeirra upprunalandi (þeir geta fylgst vel með fréttum þaðan á netinu og svona hegðun tengir þau við ættjörðina og sinn pólitíska flokk). Þetta vekur spennu og æsing hjá unga fólkinu sem stundar þessar skemtanir (spennufíkn). Þeirra leið til að sýna sínum fulltrúum stuðning, þeirra atkvæðisréttur, ef svo má segja. Pabbi var fróður um margt. Man að hann sagði „það er erfitt að byggja, en mun auðveldar að brjóta niður“. Göturnar verða þeirra sem brjóta og bramla, hinir heima. Á Íslandi bjargar frostið okkur kannski, enda lítið fjör að halda götupartí í mínus 12 gráðum.
    J.D Unwin gerði ýtarlegar rannsóknir á því hvernig samfélög og siðmenningar enda, við upphaf síðustu aldar. Samhvæmt því sem hann skrifaði 1934 þá hófst þessi hnignun evrópu um 1965, og mun gerast í þremur 33 ára lotum sem þýðir að við séum nú að sigla inn í þá þriðju og síðustu áður en við sjáum endi þeirrar evrópu sem við höfum byggt og elskað. Hér er linkur á samantekt heimspekinema um skrif J.D Unwin. Neðarlega í greininni er linkur á bókina á pdf. https://www.kirkdurston.com/blog/unwin

Skildu eftir skilaboð