Kannabis lögleitt í Þýskalandi

frettinErlent2 Comments

Löglegt verður að ganga um með allt að 25 grömm af kannabis í Þýskalandi frá og með fyrsta apríl. Einnig má rækta allt að þrjár kannabisplöntur og eiga fimmtíu grömm heima til einkanota.

Nýju lögin voru samþykkt á þýska þinginu fyrir helgi og segir Karl Lauterbach heilbrigðisráðherra Þýskalands að ætlunin sé að draga úr umsvifum svarta markaðsins og koma betur í veg fyrir kannabisnotkun barna og ungmenna.

Lauterbach  segir orðræðu andstæðinga löggjafarinnar jafngilda því að „stinga höfðinu í sandinn.“ Grasneysla ungmenna hefur vaxið gífurlega í Þýskalandi unfanfarin ár og ofneysla efnisins getur haft skaðlegar afleiðingar á heilaþroska í för með sér. Kannabisefnin sem eru til sölu ólöglega í dag séu orðin töluvert sterkari en þau voru og erfitt að fylgjast með gæðum þessara efna sem ungt fólk og börn nota í svo ríkulegum mæli.

Lögleiðing kannabisefna hefur verið til umræðu í Þýskalandi í mörg ár. Frumvarpið var að lokum samþykkt með 407 atkvæðum gegn 226.

Samkvæmt umfjöllun Guardian nota um sjö milljón Þjóðverjar kannabis með reglulegu millibili og þar af margir í lækningaskyni. Kannabisnotkun barna verður áfram ólögleg sem og notkun efnisins í grennd við skóla og leikskóla.

Ekki eru allir á eitt sáttir við þessa þróun og hefur landstjórn Bæjaralands hreyft mótbárum. Hinn íhaldssami Kristilegi demókrataflokkur sem er þar í meirihluta hefur til að mynda beðið ríkisstjórnina um að endurhugsa löggjöfina.

„Við höfum tvö markmið: að berjast gegn svarta markaðnum og bæta vernd barna og ungmenna,“ sagði heilbrigðisráðherrann í upphafi harðvítugrar umræðu, þar sem stjórnarandstaðan sakaði hann um að stuðla að fíkniefnaneyslu.

Þessi nýja löggjöf gerir Þýskaland að þriðja Evrópusambandsríkinu til að lögleiða kannabis til einkanota á eftir Möltu og Lúxemborg.

2 Comments on “Kannabis lögleitt í Þýskalandi”

  1. Ísland mun halda áfram að berja hausnum við steininn rétt eins og með bjórinn sem var aldrei leyfður fyrr en að öll Evrópuríki voru löngu búin að leyfa bjór. Íslenska þingið er uppfullt af gungum getur aldrei tekið skrefið né tekið ákvarðanir fyrr en að allir eru hvort sem er búnir að vera að gera hlutina ólöglega langa langa lengi.

Skildu eftir skilaboð