Sænska ríkisútvarpið greinir frá því, að fólk á Íslandi sem á rafbíla verði þvingað til að greiða nýjan skatt eða „kílómetragjald“ fyrir bíla sína. Bensín- og dísilbílaeigendur eru undanþegnir skattinum til að byrja með. Sagt er að ríkið innheimti sífellt minna fé með hefðbundnum eldsneytissköttum.
Ísland hefur tekið upp kílómetragjald á rafbíla, skatt sem hefur ekki áhrif á bensín- og dísilbíla – að minnsta kosti ekki í upphafi. Sagt er að rafbílum hafi fjölgað svo mikið, að tekjur af eldsneytisgjöldum hafi minnkað. Þess vegna er nýi skatturinn lagður á rafbílana. Kílómetragjald verður 6 íslenskar krónur á rafbíla og 2 íslenskar krónur á tvinnbíla.
Í Svíþjóð hefur líka verið rætt um kílómetragjald með sömu rökum: að ríkið fái minni tekjur vegna rafbílanna. Heimur Tækninnar (Teknikens Värld) skrifaði ár 2020:
„Við getum reiknað með því að kílómetraskattur verði lagður á í Svíþjóð.“
Hæt er að lesa á heimasíðu tryggingarfélagsins elbilsförsäkring.se:
„Í framtíðinni þarftu líklegast að borga skatt miðað við kílómetrafjölda.“
Árið 2019 sagði sænska ríkisútvarpið SR:
„Það verður búið að leggja á kílómetragjald á bíla innan tíu ára.“