Bandaríska söngkonan Billie Eilish segir að klám hafi skaðað á sér heilann eftir að hún fór að horfa á það í grunnsskóla. Söngkonan ræddi málið í þætti Howard Stern.
„Sem konu finnst mér skömm að klámi,“ segir Eilish sem nú er orðin nítján ára gömul. „Ég horfði mjög mikið á klám, í fullri hreinskilni. Ég byrjaði að horfa á klám þegar ég var um ellefu ára.“
Söngkonan segir það hafa haft neikvæð áhrif á sig. „Ég held þetta hafi virkilega rústað í mér heilanum og ég er miður mín yfir því að hafa horft á svona mikið klám.“
Söngkonan segist hafa horft á margar tegundir af klámi og það hafi orðið að fíkn, sem hún segir að hafi mótað áhrif á hugmyndir sínar um kynlíf og sambönd.
Þjáist af martröðum
„Það varð þannig að ég gat ekki horft á neitt annað án þess að það væri ofbeldisfullt, mér fannst það ekki spennandi,“ segir söngkonan.
„Ég hafði ekki stundað kynlíf. Ég hafði ekki gert neitt. Þannig að þetta leiddi til vandamáls og brenglaðs viðhorfs til kynlífs. Fyrstu skiptin sem ég stundaði kynlíf þá sagði ég ekki nei við því sem mér fannst ekki gott. Það var vegna þess að ég hélt að þetta væri það sem mér ætti að finnast spennandi.“
Þá segir söngkonan að hún hafi byrjað að horfa á „niðurlægjandi“ BDSM klám, sem hún segir hafa valdið því að nú þjáist hún af martröðum og svefnrofalömun.
„Ég er svo reið yfir því að klám sé dásamað svona mikið. Og ég er svo reið út í sjálfa mig að hafa haldið að þetta væri í lagi.“
Engin píka lítur svona út
Þá skaut Eilish föstum skotum að klámiðnaðinum fyrir að búa til óraunhæfar væntingar til líkama kvenna.
„Það hvernig píkur líta út í klámi er fokking klikkun,“ segir söngkonan. „Engin píka lítur svona út. Líkami kvenna lítur ekki svona út. Við fáum það ekki svona.“
Independent greindi frá.