Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis, segir ákvörðun Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar, um tímabundna setningu ráðuneytisstjóra til þriggja mánaða án undangenginnar auglýsingar ekki vera í samræmi við lög. Þetta kemur fram í áliti umboðsmanns sem birt var á vefsíðu embættisins í dag.
Áslaug skipaði Ásdísi Höllu Bragadóttur í embættið tímabundið, og er það álit umboðsmanns að aðrar leiðir hefðu verið færar til að ekki væri gengið gegn ákvæðum laga um réttindi og skyldu starfsmanna ríkisins.
Á vef umboðsmanns segir:
„Þegar fyrirætlun stjórnvalda um að koma hinu nýja ráðuneyti á fót hafi legið fyrir hefði ráðherra borið að grípa til viðeigandi ráðstafana til að tryggja starfsemi þess við stofnun. Ef ekki hefði verið nægur tími til að auglýsa embættið og ljúka skipunarferli áður en ráðuneytið tæki formlega til starfa hefðu verið færar leiðir að lögum til bráðabirgðaráðstafana. Ólögfest sjónarmið um skyldur stjórnvalda til tafarlausra viðbragða við þessar aðstæður gætu ekki réttlætt ákvörðun ráðherra um tímabundna setningu ráðuneytisstjóra án auglýsingar með vísan til þeirra sjónarmiða sem ráðuneytið byggði á.
Umboðsmaður áréttar í álitinu mikilvægi þess að stjórnvöld fylgi þeim lagareglum sem gilda um veitingu opinberra starfa og embætta og virði þau markmið sem þeim er ætlað að þjóna. Það eigi ekki síst við um ráðuneyti sem fari með æðstu stjórn framkvæmdavaldsins. Hann tekur fram að ekki séu líkur á að dómstólar myndu meta setningu ráðuneytisstjórans ógilda og að embættið hafi nú verið auglýst en mælist engu að síður til þess að ráðuneytið taki framvegis mið af sjónarmiðunum í álitinu."