Arnar Grant og Vítalía kærð fyrir tilraun til fjárkúgunar

frettinInnlendarLeave a Comment

Fréttablaðið greinir frá því í morgun að Víta­lía Lazareva og Arnar Grant hafi verð kærð til héraðs­sak­sóknara.  Kærendur eru þeir Ari Edwald, Hregg­viður Jóns­son og Þórður Már Jóhannes­son og kæruefnið er tilraun til fjárkúgunar, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífs. Málið má rekja til sumarbústaðaferðar sem Vítalía sagði frá í þættinum Eigin konur í janúar síðastliðnum.

Sagt er frá því að Vítalía hafi komið í bústaðinn eftir miðnætti en þar hafi allir verið orðnir ölvaðir. Mennirnir þrír höfðu ekki heyrt frá Vítalíu fyrr en ári eftir atvikið þar sem hún sagðist ætla að leita réttar síns eftir atburðinn um kvöldið. Kæran á hendur Vítalíu og Arnari byggist á því að þau hafi í sameiningu staðið að atburðarás sem hófst seint á síðasta ári. Vítalía á að hafa hringt í þremenningana og tjáð Hreggviði Jónssyni meðal annars að rússneskir lögmenn væru komnir með málið. „Þið fenguð heilan mánuð en þið hafið ekki gert fucking neitt,“ er eitt af því sem haft er eftir Vítalíu. Stuttu síðar fóru að berast póstar til þeirra.

Heim­ild­ir Frétta­blaðsins herma að lög­maður Vítal­íu hafi óskað eft­ir því við þre­menn­ing­ana fyr­ir hönd Arn­ars og Vítal­íu að greiða þyrfti „al­vöru fjár­hæð til að all­ir geti gengið stolt­ir frá borði og hefðu hags­muni af því að þegja.“  Krafa upp á um 50 millj­ón­ir á hvern þeirra „eft­ir skatta“ á að hafa verið gerð.

Skildu eftir skilaboð