Samstaða með lýðræði og frelsi gegn hatri og hermdarverkum

frettinInnlent, Jón Magnússon, Stríð1 Comment

Jón Magnússon skrifar:

Fyrir mánuði myrti Hamas 1.400 saklausa einstaklinga með hroðalegum hætti. Þeir pyntuðu fórnarlömbin, nauðguðu konum, drápu og svívirtu líkin, myrtu börn jafnvel ungabörn m.a. með því að kveikja í þeim og brenna þau. Villimennskan var algjör.

Svívirtu líkið

Hamas drápu, misþyrmdu og nauðguðu ungu fólki á tónlistarhátíð alls 260 þ.á.m. 22 ára stúlku frá Þýskalandi, sem þeir hópnauðguðu,myrtu, svívirtu líkið og óku með það um Gasa þar sem fólk hrækti á líkið. Villimennirnir kórónuðu ódæðið með því að höggva höfuðið af ungu konunni,sem hafði ekkert til saka unnið.

Búast hefði mátt við fjöldamótmælum á Vesturlöndum m.a.hér vegna morðanna og kröfu fólks um að varnarlausum gíslum 230 manns, verði sleppt. Fjarri fór því. Haldinn var samstöðufundur með íbúum á Gasa og Hamas í Háskólabíó 5.nóv. Samúð fundarmanna náði ekki til saklausra fórnarlamba Hamas og gísla þeirra.

Hluti fólksins á samstöðufundinum eru nytsamir sakleysingjar, sem óar við stöðugum áróðri RÚV um hörmungar og tölu fallina á Gasa skv. upplýsingum villimannasamtakanna. Svo er annar hluti, sem mætir vegna haturs á Ísrael. Væri ekki svo, þá mundi þetta fólk ekki síður halda samstöðufundi vegna hryllingsins sem er að gerast í  Armeníu og Súdan.

Rasísk og hómófóbísk samtök

Hvernig getur fólk á Vesturlöndum tekið afstöðu með rasískum,hómófóbískum samtökum eins og Hamas, sem dásama hryðjuverk,telur samkynhneigð dauðasök. Samtök sem hika ekki við að byggja stjórnstöðvar sínar, vopnabúr og birgðageymslur undir sjúkrahúsum og skólum á Gasasvæðinu.

Hamas liðar líta á að mannfórnir á Gasa þegar Ísrael slær til baka eftir hryðjuverk Hamas, sem lið í baráttunni fyrir því að grafa undan velvild í garð Ísrael, sem það gerir óneitanlega.

Á meðan öfgamennirnir í framlínu Hamas beita öllum ráðum til að drepa sem flesta, lifa forustumenn Hamas í vellystingum á lúxus hótelum í löndum eins og t.d. Qatar.

Hundruð þúsunda gyðinga hraktir úr arabalöndunum

Fyrir miðja síðustu öld voru 150.000 Gyðingar í Írak, 75.000 í Egyptalandi og tugir þúsunda í Líbýu, Sýrlandi, Jemen og Líbanon. Nánast allir þessir Gyðingar þurftu að flýja til Ísrael og meira en helmingur Gyðinga sem býr í Ísrael eru afkomendur þessa fólks. Þessir Gyðingar eiga bara Ísrael sem heimaland.

Ísrael er örlítið land. Gyðingar hafa breytt því úr hrjúfu örfoka landi í gróðurvin, þar sem velmegun er mikil og landið í fremstu röð þjóða í efnahagslegu, menningarlegu og vísindalegu tilliti. Nágrannar þeirra búa yfir miklum óbyggðum landssvæðum, en dettur ekki í hug að bjóða Palestínufólki að byggja þau.

Eina lýðræðisríkið fyrir botni Miðjarðarhafs

Ísrael er eina lýðræðisríkið fyrir botni Miðjarðarhafsins og borgararnir búa við öll almenn mannréttindi. Fimmti hver borgari í Ísrael eða 20% íbúa eru Arabískir Ísraelsmenn, sem hafa sama kosningarétt og rétt til embætta og annarra réttinda. Margir þeirra gegna mikilvægum ábyrgðarstöðum . Tæplega 20% Ísraela eru Múslimar en hafa sömu lýðréttindi og aðrir borgarar. Hvernig rímar það við slagorð Gyðingahataranna um að í Ísrael ríki apartheit eða aðskilnaðarstefna?

Þessar staðreyndir valda vinstra liðinu og Gyðingahöturnum ekki vökunum þegar þeir þykjast taka sér stöðu á grundvelli frjálslyndra skoðana og mannréttinda með einræðishyggju og ofbeldisliði Hamas, sem byggir á andlýðræðislegri miðaldahyggju, heimsyfirráða múslima og útrýmingu allra Gyðinga í heiminum.

Vonandi tekst að lama starfsemi Hamas og vonandi tekur skynsamt fólk við stjórn hjá Palestínumönnum þannig að grundvöllur skapist fyrir friði og tveggja ríkja lausnin, Ísrael og Palestína nái fram að ganga með friðsæl býli og gróandi mannlíf friðar og velsældar. Samstöðufundurinn í Háskólabíói þ 5. nóvember var ekki lóð á þá vogarskál heldur þvert á móti.

One Comment on “Samstaða með lýðræði og frelsi gegn hatri og hermdarverkum”

  1. Idiot, i áratugi hefur Ísraelska lýðræðisríkið svínað,drepið, tugtað og pínt íbúa Palestínu, þetta var hernaðaraðgerð sem heppnaðist vel hja Hamas og eina sem Idf getur gert er að fjöldamyrða allt sem fyrir er, og þetta með afhöggna ungabarnshöfuðið var nu dregið tilbaka , en Hamaz er tilbúið vegna aratuga haturs a palestinu…punktur

Skildu eftir skilaboð