Ísrael og Palestína – ólík sjónarhorn

frettinInnlent, Krossgötur, StríðLeave a Comment

Málfrelsi – samtök um frjálsa og opna umræðu, lýðræði og mannréttindi boðar til málfundar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs. Markmið okkar er að efna til málefnalegrar umræðu um ólík sjónarhorn í þessu umdeilda máli.

Frummælendur eru þau Birgir Þórarinsson guðfræðingur og alþingismaður, Magnea Marinósdóttiralþjóðastjórnmálafræðingur, Diljá Mist Einarsdóttir formaður utanríkismálanefndar Alþingis og Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra og alþingismaður.

Eftir að erindum frummælenda lýkur verður tekið við spurningum úr sal.
Fundarstjóri er Bogi Ágústsson fréttamaður.

Fundurinn verður haldinn í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu og hefst kl. 14 sunnudaginn 12. nóvember.

Ath. að fundinum verður ekki streymt.

Skildu eftir skilaboð