Fórnarlamb sprautanna: „Þeir sem bera ábyrgð láta okkur rotna“

frettinCOVID-19, Erlent, Gústaf SkúlasonLeave a Comment

Gústaf Skúlason skrifar:

Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, stóð frammi fyrir reiðu fórnarlambi Covid-19 bóluefna í beinni sjónvarpsútsendingu (sjá myndskeið á X hér að neðan). Líf mannsins hefur verið eyðilagt með „bóluefninu“ gegn Covid-19. Hann krafði Sunak svara, hvenær yfirvöld ætla að gera eitthvað fyrir þá sem sem hafa skaðast af völdum bóluefnanna.

Í sjónvarpsþætti „GB News People’s Forum“ ásakaði John Watt Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, fyrir að láta þá afskiptalausa og rotna sem hafa skaðast af völdum Covid-19 bóluefna.

Horfðu í augu mín Rishi Sunak

Watt sagði:

„Ég vil að þú horfir í augun á mér, Rishi Sunak. Ég vil að þú sjáir sársaukann, áverkana og þá eftirsjá sem ég hef í augum mínum. Ég er ekki sá eini í áhorfendahópnum sem hefur mátt þola að sjá lífið eyðilegt með þessum Covid-19 bóluefnum. Ég þekki fólk sem hefur misst fæturna og verið aflimað. Ég þekki fólk með hjartasjúkdóma eins og ég hef sjálfur, Rishi Sunak.“

Fórnarlömbin eru mest þaggaði hópurinn í Bretlandi

Að sögn mannsins hafa valdhafarnir, sem bera ábyrgð á því, að fólkið var sprautað með efni lyfjarisanna, látið fórnarlömb aukaverkananna rotna. Núna verða þeir bólusettu að hjálpa hver öðrum. John Watt uppskar lófaklapp áhorfenda:

„Hvers vegna hafa þeir sem ráða, þeir sem sögðu okkur öllum að „gera rétt,“ látið okkur öll rotna, látið mig og þúsundir – tugþúsundir – hér á landi rotna? Rishi, það er þaggað niður í okkur. Á samfélagsmiðlum og út um allt. Það er þaggað niður í okkur! Við erum það fólk sem mest er þaggað niður í – í þessu landi!“

Kemur á óvart að þaggað sé niður í röddum fórnarlamba bóluefnanna

Forsætisráðherra svaraði því meðal annars að til staðar væri „bóluefnabótakerfi“ og að hann ætti erfitt með að tjá sig um einstök mál. Rishi Sunak sagði:

„Mér þykir það mjög leitt og er hneykslaður yfir því að heyra að þaggað hafi verið niður í þér. Það kemur mér á óvart.“

Sjá myndband hér að neðan, það fyrra frá umræðuþættinum með forsætisráðherranum, hið síðara þar sem John Watt svarar árásum glóbalistablaðamanns sem býr það til að Watt sé alfarið á móti öllum bóluefnum.

Skildu eftir skilaboð