Hælisleitandi öskraði og lét öllum illum látum á þingpöllum Alþingis

frettinHælisleitendur, Innlent1 Comment

Birg­ir Ármanns­son, for­seti Alþing­is, þurfti að fresta þing­fundi eft­ir að sauð upp úr á þing­pöll­um Alþing­is á fjórða tímanum í dag.

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra var í pontu nýbyrjuð að mæla fyrir nýju útlendingafrumvarpi.

Karl­maður sem er hælisleitandi hékk utan á hand­riði þing­palls­ins og virt­ist hóta því að hoppa niður.

Ásmund­ur Friðriks­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, deildi mynd­bandi af at­vik­inu á face­book, þar sem hann segir:

„Hæl­is­leit­end­ur gerðu aðsúg, hróp og köll af þing­pöll­um í upp­hafi umræðunn­ar um breyt­ing­ar á lög­um um út­lend­inga. Í kjöl­farið hef­ur þing­fundi verið frestað í nokkr­ar mín­út­ur enda fólk slegið yfir lát­un­um.“

Heyra má annan hælisleitanda öskra yfir salinn að hann hafi verið geymdur hér í 4 ár og nú eigi að vísa honum úr landi,„þið eruð hjartalaus“ sagði maðurinn á ensku.

One Comment on “Hælisleitandi öskraði og lét öllum illum látum á þingpöllum Alþingis”

  1. Er ekki sorglegt hvernig komið er fyrir Íslandi? Það er verið að sundra þjóðinni. En þetta er það sem vinstri-klikkhausarnir vilja, eyðileggja íslenskt samfélag. Hvernig verður komið fyrir landinu eftir 5 ár, 10 ár með sama framhaldi?

Skildu eftir skilaboð