Síerra Leóne og Ísland

EskiBörn, Eldur Ísidór, Kynjamál, Mannréttindi, Pistlar, Skoðun, Transmál, Velferð, WokeLeave a Comment

Þann  21. mars sl. skrifaði þingmaðurinn Diljá Mist Einarsdóttir góðan pistil á Vísi undir fyrirsögninni „Kynfærin skorin af konum“. Því miður hefur Vísir ekki séð sér fært um að halda umræðunni áfram þar, eins og eðlilegast hefði verið. Þar rakti hún þróunarsamvinnu Íslands og Síerra Leóne, með það markmið að styðja við sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda og auka lífsgæði í fiskveiðisamfélögum.

Sierra Leóne er eitt af of mörgum  Afríkuríkjum þar sem kynfæri stúlkna og kvenna eru limlest. Þessi iðja á sér djúpar menningasögulegar rætur og hefur fylgt kynslóð eftir kynslóð, þrátt fyrir að engin trúarbrögð fari beinlínis fram á að þessi iðja sé stunduð. Þessi iðja er því miður að eiga sér stað hjá mörgum ættbálkum í Afríku algjörlega óháð því hvort þeir iðka kristna trú, íslam eða eitthvað annað. Uppruni þessara limlestinga er óljós og fræðimönnum ekki vel kunnugur, en þetta hefur verið stundað svo vitað sé síðustu tvö þúsund ár svo vitað sé..

Diljá Mist Einarsdóttir.

Virðingarvert að taka þetta mál til umræðu

Það er virðingarvert af þingmanninum að taka þessar limlestingar fyrir og Diljá á hrós skilið fyrir það. Ég vona hinsvegar að baráttuvilji hennar í þessum málaflokki sé ekki einungis bundinn við Síerra Leóne eða Afríkuríkin. Á Vesturlöndum hefur færst í aukana að limlestingar og lemstrarnir á kynfærum bæði barna og fullorðinna eigi sér stað, í ásýnd allra og jafnvel á kostnað skattgreiðenda.

Tvöfalt brjóstnám og kynþroski stöðvaður á Vesturlöndum

Í Bandaríkjunum heyrum við af tvöföldu brjóstnámi stúlkna eiga sér af hugmyndafræðilegum ástæðum allt niður í 12 ára aldur. Bæði stúlkur og drengir hafa fengið eðlilegan kynþroska sinn stöðvaðan af hugmyndafræðilegum ástæðum og ekki læknisfræðilegum.

Þessi iðja hefur verið stunduð á Vesturlöndum í tæpa tvo áratugi á börnum.

Ísland að einangrast í skottulækningum barna

Ísland er nú eitt fárra landa, sem telja sig til siðmenntaðra ríkja, sem gefa börnum kynþroskahamlandi lyf án læknisfræðilegra ástæðna. Það eru engin heilsufarsvandamál til grundvallar því að hamla eðlilegum kynþroska neins. Þessar meðferðir eru þar að auki ekki áhættulausar. Kynþroskahamlandi lyf stöðva bæði líkamlegan og andlegan þroska einstaklingsins þar sem eðlilegur þroski framheilans er stöðvaður. Samhliða lyfjagjöfinni eru einstaklingarnir tjóðraðir í þann hugmyndafræðilega hliðarveruleika að fólk geti breytt kyni sínu og fæðst í röngum líkama.

Blekkingar, ekki vísindi

Engin vísindi eða læknisfræði liggja á bak við þær hugmyndir að fólk fæðist í röngum líkama eða að kynin skipti tugum, hundruðum og jafnvel þúsundum.

Þetta er allt saman byggt á hugmyndafræði sem eru orðin að hálfgerðum ný-trúarbrögðum (e. neo-religion) sem iðkendur eru alls ekki í stakk búnir til þess að verja fyrir gagnrýni – í hið minnsta ekki opinberlega.

Ég vona að Diljá vilji uppræta limlestingar á íslenskum börnum og viðkvæmum hóps fullorðinna.

En við erum svo góð á Íslandi! Við förum eftir stöðlum Alþjóða Translækningasamtakanna WPATH

„En Ísland vinnur eftir alþjóðlegum stöðlum!“ hrópa kannski einhverjir núna við lesturinn.

Já, í ágúst svaraði embætti landlæknis fyrirspurn okkar í Samtökunum 22 þannig að Landsspítalinn setji sér verklagsreglur byggðar á nýjustu leiðbeiningum Alþjóða Translækningasamtakanna – WPATH.

Í byrjun mánaðar, í fjarveru helstu íslenskra fjölmiðla, flettum við ofan af WPATH  og afhjúpuðum þau sem samtök aðgerðasinna þar sem það var afhjúpað að verklagið og meðferðirnar eru aðeins á hugmyndafræðilegum grunni og ekki læknisfræðilegum. Um þetta hefur víða verið fjallað erlendis og mörg ríki hafa brugðist við, en ekki Ísland.

,,Höfum engin tengsl við umrædd samtök“

Í kjölfarið höfðum við samband við landlæknisembættið á ný og kynntum þeim stöðu mála. Í svari þeirra er því nú hafnað að embættið hafi verið í samskiptum við WPATH og sver af sér slíkt.

Við fögnum auðvitað þessu. Hinsvegar vísar landlæknir nú í lög um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 sem myndar hinn lagalega grundvöll fyrir starfsemi transteymisins á BUGL.

Ég spyr því: Hvernig getur staðið á því að lög sem eru skrifuð af aðgerðasinnum á vegum Samtakanna 78 séu grundvöllur fyrir starfsemi í heilbrigðisþjónustu sem skrifar upp á áhættusamar kynþroskabælandi meðferðir og krosshormóna?

Af hverju ætti það eitthvað að ganga fyrir íslensk stjórnvöld að sannfæra þau í Síerra Leóne?

Íslensk stjórnvöld setja vísifingurna í eyrun og loka augunum þegar við spyrjum þau um það sama.

 

Skildu eftir skilaboð