Fréttin birti þessa grein í janúar sl. og birtir nú aftur:
Þann 18. janúar s.l. tókst Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, á við Tómas Guðbjartsson lækni, í þættinum Bítinu á Bylgjunni. Þeir voru verulega ósammála um hvernig eigi að takast á við veiruna í ljósi gjörbreyttra aðstæðna.
Í viðtalinu kom fram í máli Tómasar að verið væri að gefa fólki á Covid-göngudeild Landsspítalans lyfið Remdesivir. Nokkrum sem til þess lyfs þekkja var verulega brugðið við að heyra þessar fréttir þar sem um stórhættulegt og umdeilt tilraunalyf er að ræða, sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (World Health Organization, WHO) hefur séð sérstaka ástæðu til að vara við notkun á fyrir Covid sjúklinga. Sjá viðvörun WHO hér.
Ekki síst vöktu ummæli Tómarar um notkun lyfsins athygli þar sem fyrir liggur að 98% af þeim sem Covid-göngudeildina sækja eru einkennalausir eða einkennalitlir og því erfitt að sjá að réttlætanlegt sé að beita svo hættulegri lyfjameðferð á þá. Lyfið er jafnframt á skilyrtu markaðsleyfi frá Lyfjastofnun og á neyðarleyfi (Emergency Use Authorization - EUA) í Bandaríkjunum.
Lyfið er annars vegar umdeilt þar sem það virðist ekki virka yfir höfuð en hins vegar vegna þess að því fylgja ógnvænlegar aukaverkanir, sem eru nýrna og lifrarbilun auk skertrar starfsemi hjarta. Ef nýrun bila þá veldur það vandamálum í lungum sem líkjast einkennum Covid.
Svo virðist vera að nánast fullfrísku fólki sé gefið þetta lyf, sem leiðir til þess að viðkomandi kann að þurfa á innlögn að halda vegna aukaverkana. Það sem er helst ógnvekjandi við aukaverkanir lyfsins er að þær svipa mjög til alvarlegrar Covid-sýkinga, þar sem skert starfsemi lungna vegna aukaverkanna lyfsins kallar á að setja þarf sjúklinginn í öndunarvél. Einnig hefur því verið haldið fram að alls ekki eigi að gefa eldra fólk með Covid þetta lyf þar sem það þolir einfaldlega ekki aukaverkanir og deyr úr þeim, frekar en af Covid.
Aukaverkanir Remdesivir, þ.e.a.s. lifrar- og nýrnabilun eru vel þekkar, sbr. rannsóknir:
Rannsókn, sem birt var í júlí 2021, leiddi svo í ljós að þeir sem fengu lyfið voru lengur á sjúkrahúsi og létust frekar en samanburðarhópurinn, sem fékk aðeins lyfleysu:
Umfjöllun og aðvaranir
Margvísleg umfjölum og aðvaranir hafa auk þess komið fram um lyfið Remdesivir en á þær hefur ekki verið hlustað:
Doctor Reveals Remdesivir Is Real Cause Of COVID-19 Maladies
Large Remdesivir Study Finds No COVID-19 Survival Benefit
Horowitz: Remdesivir is the greatest scandal of the pandemic
Að lokum er bent á þessa samantekt eftir Helga Örn Viggósson um lyfið:
One Comment on “Hættulega lyfið Remdesivir notað á göngudeildinni”
Sækja ætti lækna sem nota þetta eitur til saka fyrir manndráp að ásettu ráði!