Heimurinn brennur og ritstjórn Morgunblaðsins á að leggja niður störf þegar Staksteinar birta tilfallandi gagnrýni á heimsendaspár vegna loftslags af mannavöldum. Á þessa leið er málflutningur Andra Snæs Magnasonar rithöfundar á Fjölmiðlanördum á Facebook. Stundin endurómar.
Tilefnið er blogg þar sem vitnað er í tvo íslenska veðurfræðinga, bandarískan loftslagsvísindamann, auk annarra heimilda, og dregnar ályktanir sem eru Andra Snæ ekki að skapi.
Fyrir þrem árum krafðist Andri Snær þöggunar gagnrýnisradda á manngert loftslag. Síðan hefur slaufunarmenningin vaxið og dafnað. Nú er tímabært að krefjast að starfsfólk fjölmiðla leggi niður störf ef svo ber við að vitnað er í aðra en handhafa rétttrúnaðarins.
Menn eins og Andri Snær eru óvinir frjáls samfélags viti borinna manna. Í menningargúlagi Andra Snæs er aðeins ein skoðun leyfð og rökræður bannaðar.
Árið 2019, sama ár og hann heimtaði þöggun, var Andri Snær í fréttum vegna andlátsfregnar sem hann samdi um jökulinn Ok er rithöfundurinn sagði vera að hverfa vegna manngerðs veðurfars. Andri Snær fíflaði Katrínu forsætis með sér í pílagrímsför á hálendið með minningarskjöld. En jökullinn hvarf 59 árum áður, eins og rifjað var upp í tilfallandi athugasemd. Náttúran hafði framið glæpinn fyrir tveim kynslóðum en Andra Snæ var í mun að kenna núlifandi Íslendingum um voðaverkið.
Ofstæki kjána er öðrum þræði skoplegt en hinum þræðinum sorglegur vitnisburður um menningarástand.
2 Comments on “Slaufun að kröfu Andra Snæs”
Synd hann skuli ekki hafa orðið forseti þar sem hann gæti nýtt athyglina til að níðast almennilega á vondum Íslendingum.
Andri Snær er populisti „par excellence“.