Diljá Pétursdóttir sigraði Söngvakeppni sjónvarpsins sem haldin var í Söngvakeppnishöllinni í Gufunesi í kvöld.
Þar með verður Diljá fulltrúi Íslendinga í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, í ár. Keppnin að þessu sinni verður haldin í bresku borginni Liverpool.
Diljá var aðeins 12 ára þegar hún tók þátt í Ísland Got Talent. „Þetta var svo stórt fyrir mér því ég hef alltaf horft á allar svona keppnir, Eurovision, X Factor og America’s got talent. Þegar þetta kom til Íslands var ég bara: „Þetta er mitt tækifæri. Þetta skipti mig svo miklu máli og var fyrsta svona stóra verkefnið sem ég gerði,“ segir Diljá.
Fimm lög voru í úrslitum Söngvakeppninnar. Tvö þeirra komust í úrslitaeinvígið, Power og OK, og stóð Diljá uppi sem sigurvegari.
Aldrei hefur verið meiri þátttaka í kosningu Söngvakeppninnar en alls bárust tæplega 260.000 atkvæði.
Fram kom að það hafi verið draumur Diljáar að keppa á stóra sviðinu í Eurovision frá því hún var 7 ára gömul. Fallegur draumur hefur hér með ræst.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fer fram dagana 9. - 13. maí í Liverpool á Englandi.