Fyrrverandi embættismaður Hvíta hússins, Dana J. Hyde, lést í einkaþotu á leið til Washington DC eftir að vélin lenti í mikilli ókyrrð þegar hún flaug yfir Nýja England.
Hyde sem starfaði í Hvíta húsinu í forsetatíð Obama og Clinton var einnig þekktur lögmaður sem starfaði áður sem ráðgjafi í 9/11 nefndinni.
Hún var flutt í skyndi á sjúkrahúsið í Connecticut þar sem hún var úrskurðuð látin. Hún var 55 ára.
Hyde var á ferð með eiginmanni sínum, syni og tveimur öðrum áhafnarmeðlimum þegar beina þurfti vélinni í nauðlendingu á Bradley alþjóðaflugvellinum í Connecticut. Vélin var að gerðinni Bombardier Challenger 300.
Allir hinir fjórir farþegar komust lífs af og ekki var tilkynnt um nein meiðsli. Lögreglan í Connecticut sem vinnur að rannsókn tilkynnti um andlát Hyde á mánudag.