Leiðari Morgunblaðsins, Óvönduð meðöl við Covid-19, fjallar í dag um Lokunarskjölin (lockdown-files) svokölluðu í Bretlandi sem breska blaðið Daily Telegraph hefur verið að birta undanfarna daga.
Um er að ræða trúnaðarupplýsingar í formi rúmlega 100.000 skilaboða úr innsta hring stjórnmálamana á Bretlandi frá dögum faraldursins. Skilaboðin voru á milli Matt Hancock, þáverandi heilbrigðisráðherra Bretlands, og hans helstu samstarfsmanna. Skjölin sýna hvað fór ráðamönnum á milli á meðan faraldurinn stóð yfir.
Leiðarhöfundur Morgunblaðsins segir lesninguna hrollvekjandi og sýna breyskleika mannanna, hvernig valdið spillir, og hið fornkveðna sannast: „að leiðin til Heljar er vörðuð góðum ásetningi.“
Skilaboðin sýndu, segir í leiðaranum „að það hafi skjótt orðið helsta markmið stjórnvalda að vekja víðtækan og viðvarandi ótta til að tryggja að farið yrði að fyrirmælum þeirra án minnsta vafa,“ og að fjöldi dæma sýni að bresk stjórnvöld hafi afvegaleitt borgarana og auk þess ranglega fullyrt að vísindin réðu ferðinni.
Þetta átti ekki við í upphafi, segir leiðarhöfundur, en það voru ekki liðnir nema nokkrir mánuðir þar til stjórnamálamenn voru komnir á bragðið eftir að völdin stigu þeim til höfuðs og mestu máli skipti að halda þjóðinni í greipum sér. Þeir sem andmæltu urðu þjóðníðingar en stjórnmálamenn fóru líta á sig sem hetjur.
Rannsókn nauðsynleg hér á landi
Þá segir leiðarhöfundar Morgunblaðsins að sóttvarnaaðgerðir hér á landi hafi ekki verið nærri því jafn harkalegar og í Bretlandi og fleiri vestrænum ríkjum. „Samt blasir við að hér gætti einnig nokkurrar hjarðhegðunar, mörk vísinda og stjórnmála voru stundum óskýr og það lágu ekki alltaf málefnaleg rök þar að baki. Sumt greinilega eitthvað sem menn lásu á vefnum þann morguninn. Annað var jafnvel dæmt ólöglegt og efnahagsráðstafanir reyndust misvel. Afleiðingarnar eru enn að koma fram.“
Því er nauðsynlegt að stjórnvöld láti rannsaka viðbrögð Íslendinga við veirunni til að mistökin endurtaki sig ekki, segir meðal annars og að lokum í leiðara dagsins.