Hræðsluáróðri var beitt til að fá fólk í Covid sprauturnar

frettinAlþingi, COVID-19, ViðtalLeave a Comment

Björn Þorri Viktorsson hæstaréttarlögmaður var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur á Útvarpi Sögu í vikunni þar sem nýtt sóttvarnarlagafrumvarp var rætt.

Íslenskt forræði á farsóttarmálum framselt til WHO

Björn Þorri sagði að verði frumvarpið að lögum verði ráðherra heimilt að innleiða nánast allar reglur úr alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni inn í íslenska löggjöf. Hann segir það mjög athyglisvert sérstaklega þegar haft er í huga, að 80% fjármuna, sem renna til Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) komi frá stærstu lyfjafyrirtækjunum sem leggja áherslu á hagnað og gera miklar arðsemiskröfur. Björn sagði það vera sérkennilegt, að ekki sé horft með gagnrýnni augum á aðkomu lyfjafyrirtækjanna að WHO.

„Mér finnst of lítill gaumur hafi verið gefinn að því...að fólk trúði því einlæglega í upphafi að með sprautunum væri verið að koma í veg fyrr smit alveg eins og okkur var sagt, en reyndist svo ekki vera rétt. Sóttvarnalæknir hélt því fram að þetta kæmi í 90% tilvika í veg fyrir smit en svo fjaraði það allt saman út og annað kom í ljós“

Innihald bóluefnanna óþekkt

Björn Þorri sagði síðan að þegar menn gátu ekki lengur haldið því til streitu að sprauturnar kæmu í veg fyrir smit þá var því haldið fram, að fólk veiktist líklega minna, fengi það sprautuna. „Þegar yfirmenn lyfjarisanna voru svo kallaðir fyrir þingnefndir hafi þeir viðurkennt að það hefði ekki einu sinni verið kannað áður en efnin fóru á markað hvort þau kæmu í veg fyrir smit,“ sagði Björn.

Arnþrúður benti á að það væri ákveðið áhyggjuefni, að ekki bærust réttar upplýsingar til Íslands. Ráðamenn hérlendis eiga erfitt með að skoða tillögur af gagnrýni sem berast frá útlöndum.

Þá kom fram í þættinum að í þessu nýja sóttvarnarfrumvarpi sé greint frá því og mælt fyrir um í orðskýringum fjórðu greinar laganna, þar sem lýst sé inngripi í líkama og talað um að gera gat eða rista skurð á húð, ísetningu áhalds eða framandi efnis í líkamann og rannsókn á líkamsholi.

Björn segir orðskýringarnar vera dæmi um að verið sé að setja inn skýringar beint úr alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni og taka upp hér. Hann sagði skýringar Hafdísar Hrannar Hafsteinsdóttur þingmann Framsóknarflokksins og frummælanda frumvarpsins um að mRNA væri framandi efni nokkuð langsóttar og segir öll bóluefni sem ekki hafa verið reynd í langan tíma í raun vera framandi efni og það gildi sérlög um vísindatilraunir á heilbrigðissviði um efni sem hafa ekki verið fullreynd. Eftir þessu var ekki farið þegar byrjað var að nota Covid efnin.

Björn Þorri spyr hvers vegna ekki hafi heyrst frá vísindasiðanefnd um málið og hvort allir séu sofandi þar. Arnþrúður sagðist hafa rætt við vísindasiðanefnd sem hafi svarað því að málið hefði aldrei komið inn á þeirra borð, og engu líkara væri að búið sé að loka á hina ýmsu framkvæmdaraðila og öryggisventla þegar kemur að Covid efnunum.

Borgaraleg réttindi afnumin með sóttvarnarlögum

Hvað snertir ákvæði í frumvarpinu sem gefur sóttvarnalækni heimild til handtöku á fólki og vista það á ýmsu stöðum segir Björn Þorri að fólk hafi í raun verið frelsissvipt í faraldrinum og jafnvel fært á sóttvarnarhús gegn sínum vilja. Lögreglan hafi gengið um og talið sig sjá merki um lögbrot ef til dæmis fleiri en tíu komu saman á ákveðnum vinnustöðum eða jólaboðum.

„Það er að koma upp hérna þetta aukna stjórnlyndi sem kemur erlendis frá og þetta hef ég verið að sjá í Evrópu, til dæmis og í Bandaríkjunum þar sem forsetinn er löngu búinn að lýsa því yfir að Covid sé búið, en samt fá óbólusettir ekki að fara til Bandaríkjanna. Það er verið að reyna að stýra okkur af miklu meira afli en áður og taka af okkur persónubundin og stjórnarskrárvarin réttindi í nafni sóttvarna, og ég hef bara áhyggjur af því þó maður vilji auðvitað bregðast við af skynsemi, ef brjótist og breiðist út farsóttir“

Bresk stjórnvöld vissu að faraldurinn væri ekki hættulegur

Björn segir einkennilegt að lítið sé fjallað um Whats app lekann (sbr. frásögn Daily Telegraph) hérlendis þar sem flett var ofan af breskum stjórnvöldum sem vissu að faraldurinn væri ekki hættulegur og og um leið var varpað ljósi á partýstandið í Downingstræti með þátttöku Boris Johnson þáverandi forsætisráðherra.

„Hér er ekkert fjallað neitt um þetta og hvar er RÚV? af hverju segja þeir ekkert frá þessu?“ spyr Björn.

Arnþrúður vísaði til þess að RÚV hafi lagaskyldu til að upplýsa um eins mörg sjónarmið og mögulegt væri. Því sé afar slæmt að þetta mál skuli ekki fá neina umfjöllun frekar en alvarlegar afleiðingar og veikindi eftir sprautumeðferðinrnar.

Fólk var hrætt til að fara í sprautuna

Björn sagði að mjög mikið af upplýsingum væri haldið frá fólki, sérstaklega í tengslum við Covid. Hann segir það skiljanlegt að erfitt væri að ræða þessi mál en jafnframt nauðsynlegt enda hafi margir verið skelfingu lostnir og eftir á að hyggja hafi allar aðgerðir stjórnvalda verið til þess fallnar að hræða fólk.

„það var verið að hræða fólk til þess að það færi í þessar sprautur, það voru birtar myndir frá Wuhan þar sem verið var að byggja spítala á methraða og það var verið að rafsjóða fólk fast inni í byggingum, það voru sýndar myndir af hundruðum líka út á götu og svo framvegis, þetta var gert í þeim tilgangi að gera fólk skelfingu lostið,“ sagði Björn Þorri Viktorsson lögmaður.

Hér á má hlýða á viðtalið við Björn Þorra.

Skildu eftir skilaboð