Páll Vilhjálmsson blaðamaður og kennari skrifar:
Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, bað vesturlönd fyrir tveim vikum að láta af hræðsluáróðri. Áróður vesturlanda ylli efnahagslegum hörmungum í Úkraínu. Biden forseti Bandaríkjanna gerir illt verra fyrir Úkraínu og boðar rússneska innrás n.k. miðvikudag, segja bæði Telegraph og Welt.
Útlendingar flýja Úkraínu unnvörpum. Flugfélög hætta áætlunarflugi. Engum dettur í hug að fjárfesta í landinu á meðan innrás vofir yfir. Áður hafa Bandaríkin og önnur vesturlönd lýst yfir að þau muni ekki fórna einum einasta hermanni fyrir fullveldi Úkraínu. Vestræn ríki hafa þvegið hendur sínar af örlögum nágranna rússneska bjarnarins.
Skynsamlegasta í stöðunni fyrir Pútín er að bíða með hermenn sína Rússlandsmegin landamæranna og láta Úkraínu blæða út efnahagslega. Fyrr heldur en síðar biður stjórnin i Kænugarði um samninga. Sem yrðu á forsendum Rússa.
Á hinn bóginn. Bandaríkin virðast telja sig vita að innrás verði gerð í næstu viku. Gangi það eftir yrði maður að taka hatt sinn ofan fyrir CIA og velta fyrir sér skammhlaupi í heilakvörn Pútín.
En ætti maður að velja hvor sé meira út á þekju, Biden eða Pútín, hlýtur sá bandaríski að taka gullið.
Tilfallandi spákort frá 29. janúar sl. gildir enn um Úkraínu. Pútin sigrar án innrásar. En skjótt skipast veður í lofti. Gildir bæði um íslenskt veðurfar og Úkraínudeiluna.