Af skærum skæruliða í Samherjadeilum

frettinPistlar2 Comments


Ef rétt er hjá Páli bloggara Vilhjálmssyni þá er stuldur síma Páls skipstjóra Steingrímssonar alvarlegasta mál í sögu íslenskrar blaðamennsku ... ekki bara það, einn sá alvarlegasta í sögu evrópskrar blaðamennsku og miklu alvarlegra en mál News of the World eins söluhæsta fréttablaðs veraldar fyrir áratug. Blaða- og fréttamenn RÚV, Stundarinnar og Kjarnans hafa réttarstöður sakborninga kallaðir fyrir lögreglu, samanber áhugavert blogg og viðtal í Bíti Bylgjunnar.

Páll Steingrímsson, skipstjóri.

Maður var fluttur milli heims og helju suður vart hugað líf eftir að hafa drukkið bjór í Eyjafirði ... síma hans stolið, hakkaður og afritaður. Skömmu síðar samstilltu Stundin og Kjarninn fréttir unnar upp úr síma skipstjórans. Var eitrað fyrir Páli skipstjóra inn í Eyjafirði? Tengjast brotthvörf Rakelar Þorbergsdóttur fréttastjóra, Aðalsteins Alla Kjartanssonar og Helga Seljan þessu máli? Hver fer af RÚV yfir á Stundina ótilneyddur? ... jafnvel þó RÚV hljómi eins og rop úr iðrum. Hvers vegna er Þóra Arnórsdóttir á RÚV og Kveik með stöðu sakbornings? Var plottinu stýrt frá RÚV í Efstaleiti, líkt og Páll fullyrðir? Hausar hafa fokið svo mikið gengur á.

Hver er staða Stefáns Eiríkssonar útvarpstjóra? Af hverju reynir gamli lögreglustjórinn á Efstaleiti að þagga umræðu og hylja slóð? Af hverju segir RÚV ekki umbúðalaust frá því sem á gengur en hylur með hálfsannleika og lygi. Finnst formanni Blaðamannafélags Íslands – starfsmanni RÚV  í lagi að fólk sé flutt landshluta á milli vart hugað líf eftir alvarlega eitrun, síma stolið, hakkaður, afritaður og fréttir samstilltar? Finnst blaðamönnum það almennt í lagi?

Þórður Snær Júlíusson á Kjarnanum er líkt og gutti staðinn óknytt þegar hann segist vera með stöðu sakbornings fyrir að flytja fréttir. Er maðurinn bara kjáni eða algerlega gersamlega liðónýtur blaðamaður? Finnst Dodda bara allt í lagi að vera með afrit úr síma manns sem lá milli heims og helju á sjúkrahúsi? Bara allt í lagi?

Hverjir eru skæruliðar í málinu?

Í Kastljósi RÚV boðar Píratinn Þórhildur Sunna að fara til Mannréttindadómstóls Evrópu með málið sem hún kallar ... atlögu lögreglu gegn blaðamönnum útaf einhverjum síma og einhverjum skipstjóra. Hversu kaldranalega er að orði komist? Hvað varðar Pírata um líf og heilsu manns sem sætt hefur árás?

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra ber fram spurningar, þar á meðal: af hverju öll stóryrðin áður en lögreglan spyr fyrstu spurningar við rannsókn málsins? Við gerum öll kröfu til þess að hér á landi séu allir jafnir fyrir lögunum. Má gera þá kröfu að allir séu jafnir fyrir fjölmiðlunum líka? Fyrir vikið er eiturörvum beint að BjarnaBen. Af hverju?

News of the World eitt helsta fréttablað Bretlands hrundi fyrir áratug eftir að blaðamenn hökkuðu sig inn í síma óbreyttra borgara ... Þann 7. júlí 2011 voru Andy Coulson ritstjóri og Clive Goodman blaðamaður handteknir. Goodman var svo dæmdur í fangelsi. Alls voru um 10 manns handteknir vegna rannsóknar lögreglu. Þann 10. júlí 2011 kom út síðasta tölublað News of the World sem sagði við 7.5 milljón lesendur sína eftir 168 ára sögu: ...  Thank you & goodbye

2 Comments on “Af skærum skæruliða í Samherjadeilum”

  1. Ég ásamt fleirum höfum fylgst með bloggum Páli bloggara um þetta reifara kennda mál síðan fyrir áramót og hef því lesið þetta margoft. Það sem kemur mér mest á óvart þegar þetta er orðið opinbert hversu samæfð viðbrögð blaðamannastéttarinnar upp til hópa er og svo virðist vera að ákvörðun hefur verið tekin í bakherbergjum samfélagsins en að þessu sinni er það ekki útgerðakallar, olíufurstar eða spilltir pólitíkusar neinei bara blaðamenn sem við eigum að geta treyst. Maður er eiginlega bara skák og mát. Þegar horft er í drullupollinn þá er ekki lengur hægt að sjá eitthvað hreint og óspillt.

  2. Blaðamenn á Íslandi, hafa brugðist sínum skyldum varðandi sín störf, sést vel þegar horft er yfir seinustu 2 árin. Þess vegna les maður Frettin.is og Sögu. Er ekki frá því að DV sé e-ð að reyna að taka sig saman í andlitinu.

Skildu eftir skilaboð