Arnar Þór vill láta láta rannsaka „samkrull fjölmiðla og valdhafa“ í faraldrinum

frettinInnlendar7 Comments

Sérstök umræða fór fram á Alþingi í dag um umhverfi fjölmiðla. Málshefjandi var Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisn­ar, og Lilja Alfreðs­dótt­ir, ráð­herra fjöl­miðla­mála, var til and­svara.

Arnar Þór Jóns­son, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagðist vilja láta ráð­herra úr rík­is­stjórninni skipa nefnd til að fara yfir það sem telur að hafi farið úrskeiðis í fjöl­miðlun á tímum faraldursins og að nefndin skoði það sem hann segir vera sam­krull vald­hafa og fjöl­miðla á tímabilinu.

Arnar Þór sagði fjöl­miðla gegna því hlut­verki að veita þeim sem fara með póli­tískt og efna­hags­legt vald aðhald, sem vær gert í þágu almenn­ings. „Hlut­verk fjöl­miðla er ekki að veita almenn­ingi aðhald í þágu vald­hafa. Ég tel að á tímum kór­ónu­veirunnar hafi þetta sam­hengi riðl­ast. Ég hef áhyggjur af því að hér hafi verið farið í áróð­urs­her­ferð í nafni gagn­rýnnar hugs­unar sem að mörgu leyti hefur grafið undan gagn­rýnni hugsun, þegar fólki er sagt hverju það eigi að trúa og hverju ekki. Og margt af því sem hefur verið sagt á und­an­förnum tveimur árum hefur komið í ljós að ekki var rétt.“

Síðan sagðist Arnar Þór vilja upp­lýsa um að hann hefði á þing­flokks­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í dag lagt til að það yrði lögð fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga, sem Arnar Þór býðst til að skrifa, og til að ráð­herra skipi nefnd „til að fara yfir það sem hér hefur farið úrskeiðis í fjöl­miðlun og sam­krulli vald­hafa og fjöl­miðla á síð­ustu tveimur árum.“

Í upphafi ræðu sinnar sagðist Arnar Þór finna sam­hljóm í umræð­unum að dagar Rík­is­út­varps­ins í núverandi mynd færu að stytt­ast og skapaði þannig rými fyrir frjálsa fjöl­miðla.

7 Comments on “Arnar Þór vill láta láta rannsaka „samkrull fjölmiðla og valdhafa“ í faraldrinum”

  1. Eini maðurinn sem ég treysti á alþingi í dag. Og einn af fáum sem ég treysti 100% á Íslandi.

  2. Arnar, thank you for existing. You are the only force and authority that will lead Iceland to just prosperity. Help our children go to school to be educated, not to be ideologically indoctrinated. Help us get rid of the neoliberal baboons that are leading us to total destruction. You will not be just a leader, you will be a saint, amen.

  3. Sérstaklega þarf að rannsaka þátttöku RUV í samstarfi EBU um samræmdan ‘sannleika á rauntíma’ í svokölluðu ‘Trusted News Initiative’ sem komið var á af evrópskum rikísmiðlum undir forystu BBC & einkamiðlum & samfélagsmiðlum. Hvernig var staðið að ákvörðun um þátttöku, hver var fulltrúi RUV & var þetta gert með samþykki ráðherra & Alþingis?

  4. Frabært framlag Hjá Arnari alveg hreint, Hann nætti líka benda á að það sam krull fjölmiðla íslands við BBC og aðra miðla því ég man ekki til þess að við íslemdingar höfðum samþikt að tala einu máli samam í fjölmiðlum og segja eingöngu sömu sögunna í rauntíma sem hefur verið raunin síðustu 2 ár sem þíðir að okkar miðlar eru í raun ekki frjálsir!!!.

  5. Þessi maður á að vera forsætisráðherra í staðinn fyrir þennan gagnslausa dósamat sem situr þarna í dag.

  6. Frabært framlag Hjá Arnari…..Mér sýnist að hann og Sigmundur Davíð séu einu mennirnir sem mér sýnist að hækt sé að treysta á Alþíngi í dag….

Skildu eftir skilaboð