Shonka Dukureh, sem nýlega lék Big Mama Thornton í kvikmyndinni Elvis eftir Baz Luhrmann, fannst látin á fimmtudaginn í íbúð sinni í Nashville, að sögn lögreglu. Hún var 44 ára. Tónlistarkonan var í miðri upptöku á fyrstu stúdíóplötu sinni sem ber titilinn 'The Lady Sings the Blues.'
Annað af tveimur börnum hennar fann lík móður sinnar í svefnherbergi hennar og leitaði til nágranna eftir hjálp. Hringt var í neyðarlínuna klukkan 9:27 að staðartíma í Nashville, að sögn lögreglu. Unnið er í því að rannsaka dánarorsök, en ekki er grunur á að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.