Hinn nýi guð Vatikansins

frettinErlent, Hallur HallssonLeave a Comment

Eftir Hall Hallsson:

Vatikanið hefur gefið út silfur evru frá 2002 með ESB-stjörnum en eins og fólk veit þá kveðst páfi vera staðgengill Drottins á jörðu. Þetta er snotur bísniss því silfurevra Vatikansins hefur söfnunargildi; gefin út í takmörkuðu upplagi, selst jafnan upp og hækkar í verði.

Fyrsta silfurevra Vatikansins 1€ var af Jóhannesi Páli páfa, svo hafa komið út seríur með Benedikt páfa og Francis páfa sem hefur agiterað fyrir nýrri ríkistrú 21. aldar, Krislam. Francis páfi boðar að kristni og islam rúmist í einni og sömu persónu.

Nú er silfurevran 20€. Evru prentsmiðjur eru í yfirgír líkt í Ameríku vegna styrjaldar og plágu svo þessar traustu myntir gjaldfalla með auknu framboði og okkur óbreyttu alþýðufólki er sendur reikningurinn. Mun þarna komin skýring á 20€ silfurevru ... Maður spyr sig. Frá stofnun ameríska Seðlabankans 1913 hefur verðlag í Ameríku hækkað um 2.921.92% samkvæmt nýjum tölum enda hafa allar götur síðan geisað styrjaldirog plágur í mannheimum.

Silfurevra Vatikansins

Á nýjustu silfurevru Vatikansins er páfa hvergi að sjá en kominn er nýr staðgengill guðs í Vatikaninu. Það er vaksínsprauta í höndum sérfræðinga sem boða að við eigum að treysta vísindum því þau viti best enda verði allt að gulli í höndum Bill Gates og big-pharma.

Læknir og hjúkka með sprautu í hönd standa yfir ungri manneskju og sprauta, ja eigum við að segja vaksíni frá Pfizer líkt og á Íslandi sem leggur allt sitt traust á vísindin. Svo örugg voru Kata Jak, Willum, Svandís, Bjarna Ben, Þórólfur, Alma og Víðir að íslenskri þjóð var smalað í Höllina til að testa pfizer. Myntin er merkt Citta del Vaticano; borgríkinu Vatikan.

Skildu eftir skilaboð