32 ökumenn teknir fyrir ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur um helgina

frettinInnlentLeave a Comment

32 ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Lögreglan á Höfuðborgarvæðinu greinir frá þessu.

Sautján voru stöðvaðir í Reykjavík, átta í Hafnarfirði, fjórir í Kópavogi og þrír í Garðabæ. Fjórir voru teknir á föstudagskvöld, tólf á laugardag, þrettán á sunnudag og þrír aðfaranótt mánudags. Þetta voru tuttugu og sex karlar á aldrinum 19-54 ára og sex konur, 21-44 ára. Átta þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og sex hafa aldrei öðlast ökuréttindi.

Skildu eftir skilaboð