Samningur dómsmálaráðuneytisins við Rauða krossinn um réttaraðstoð og talsmannaþjónustu fyrir hælisleitendur hefur ekki verið framlengdur. Samningurinn rennur út 30. apríl næstkomandi, en öllum lögfræðingum Rauða krossins hefur verið sagt upp störfum.
Þetta kemur fram á vef Vísis.
Óvíst er hvert framhaldið verður í málaflokknum, en Rauði krossinn hyggst taka þátt í útboði á þjónustunni verði að því.
Vísir hefur eftir Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort að farið verði í útboð yfir höfuð. Þjónustan sé ekki útboðsskyld, en breytingar í málaflokknum séu á döfinni og því hafi verið ákveðið að framlengja ekki samninginn við Rauða krossinn.