Réttarhöldin í máli Elon Musk og Twitter hófust formlega í dag. Dómari í Delaware hafnaði beiðni Musk um að fresta réttarhöldunum til næsta árs, og þess í stað munu þau fara fram í október á þessu ári.
Twitter höfðaði mál gegn Musk fyrir að falla frá samningi um kaup á samfélgasmiðlinum fyrir 44 milljarða dollara. Musk fullyrðir aftur á móti að Twitter hafi ekki upplýst um fjölda gervinotenda sem væru notaðir á miðlinum.