Faðir ríkislögreglustjóra gat ekki gert grein fyrir á fjórða tug vopna: einungis yfirheyrður sem vitni

frettinInnlendarLeave a Comment

Faðir ríkislögreglustjóra Guðjón Valdimarsson, gat ekki gert grein fyrir á fjórða tug vopna þegar húsleit var gerð heima hjá honum í tengslum við rannsókn á svokölluðu hryðjuverkamáli. Þá fékk hann aldrei réttarstöðu sakbornings þrátt fyrir vitnisburð um að hann hefði selt frá sér breytt ólögleg vopn í skiptum fyrir reiðufé. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.
Guðjón ekki handtekin og lögregla veitir engar upplýsingar

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri sagði sig frá rannsókn á hryðjuverkamálinu vegna tengsla föður hennar, Guðjóns Valdimarssonar, við málið. Guðjón er þekktur byssusmiður og selur vopn á vefsíðu sinni, vopnasalinn.net.

Húsleit var gerð heima hjá honum í lok september og heimildir fréttastofu herma að þar hafi fundist hátt í fjörutíu óskráð skotvopn, sem Guðjón hafi ekki getað gert grein fyrir. Hann var hins vegar ekki verið handtekinn og lögregla veitir engar upplýsingar um hvaða stöðu hann hefur í málinu.

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Sigríður Björk hefur þurft að segja sig frá rannsókn því árið 2018 kom nafn Guðjóns föður hennar upp í tengslum við rannsókn á meintu vopnalagabroti manns sem reyndist vera með breytt vopn í vörslum sínum. DPMS riffil, sem búið var að breyta í hálfsjálfvirkan riffil.

„Og þá beinist rannsóknin eingöngu að því hvort kaupandinn hafi gert það sem hvorki kunni það né hafði tæki og tól í það eða aðgang að íhlutum sem þurfti. En vopnasalinn hann var bara yfirheyrður sem vitni,“ segir Einar Gautur Steingrímsson, verjandi mannsins sem sætti ákæru vegna vopnalagabrotsins.

Ljóst að einhver annar breytti vopninu en ekki rannsakað hver

Svo fór að hinn grunaði í málinu var sýknaður í Landsrétti  enda tókst ekki að sanna að hann hefði breytt vopninu.  Og þar með var málinu lokið. Ekki var rannsakað hvort Guðjón hefði breytt vopninu eða hvort það hefði komist í hendur annars - og þá hvers - sem þar af leiðandi hefði framið vopnalagabrot með því að breyta byssunni.

„Það er með öllu óskiljanlegt að sá sem selur byssu, sem reynist búið að breyta, sé ekki andlag rannsóknarinnar og sá sem kaupir af honum. Sá sem getur breytt vopninu hann er ekki rannsakaður heldur sá sem ekki gat það,“ segir Einar Gautur og furðar sig á vinnubrögðum lögreglu.

Guðjón yfirheyrður á heimili sínu einungis sem vitni

Guðjón var yfirheyrður vegna málsins en það var gert á heimili hans í Hafnarfirði, ekki á lögreglustöðinni, og hvergi í gögnum málsins eru upplýsingar um hvers vegna yfirheyrslan fór fram heima hjá honum.

Þá hefur fréttastofa gögn sem sýna að sakborningurinn í fyrrnefndu máli hafi greint frá því að hann hafi borgað Guðjóni 1500 þúsund krónur fyrir riffilinn - í reiðufé. Aldrei hafi verið gefin út kvittun eða reikningur fyrir kaupunum og voru þar af leiðandi ekki gefin upp til skatts.  Guðjón staðfesti það að hluta við skýrslutöku, eða að viðskipti hefðu farið fram með reiðufé, fyrir 700 þúsund krónur.

Einar Gautur segir að það sé með öllu óskiljanlegt, að vopnasalinn Guðjón Valdimarsson hafi einungis verið yfirheyrður sem vitni í málinu og aldrei haft rétt­ar­stöðu sak­born­ings þrátt fyr­ir vitn­is­b­urð um að hann hefði selt frá sér breytt ólög­leg vopn í skipt­um fyr­ir reiðufé. Kaupandinn á vopninu hafi ekki haft þekkingu eins og Guðjón til að breyta vopninu en yfirheyrslan hafi aldrei snúið að því. Svo fór að hinn grunaði var sýknaður í málinu því ekki hafi tekist að sanna að hann hafi breytt vopninu. Ekki var rannsakað hvort Guðjón hefði breytt vopninu, eða hvort hafi komist í hendur annars og þá hvers, sem þar að leiðandi hefði framið vopnalagabrot með því að breyta byssunni.

Hluti vopnanna sem um ræðir

Skildu eftir skilaboð