Skyndilegum andlátum fjölgar samhliða C-19 „bólusetningum“

frettinBólusetningarLeave a Comment

Það er ekki lengur umdeilt að dauðsföll áður heilbrigðs yngra fólks eru að aukast um allan heim og það mikið að jafnvel samráðs- og keyptu fjölmiðlarnir hafa neyðst til að taka á þessu hörmulega fyrirbæri og fjalla um það.

Á hverjum degi þessa dagana er greint frá því í helstu fjölmiðlum að einhver hafi „dáið skyndilega“ þar sem ekki er lengur mögulegt að fela allan þennan fjölda dauðsfalla fyrir almenningi.

Helstu fjölmiðlarnir fjalla ekki um mögulega dánarorsök
Það sem enginn þessara samráðsfjölmiðla þorir aftur á móti að fjalla um er hvort þetta unga, áður heilbrigða fólk, hafi verið sprautað með hinum svonefndu COVID-19 „bóluefnum“ og hvaða mögulega þátt þessi mRNA tilraunabóluefni hafi getað átt í „óvæntum“ dauða þeirra.

Ástæðan fyrir þessu er án efa sú að helstu fjölmiðlarnir eru í dag ekki atvinnugrein sem getur lifað af á frjálsum markaði og því háðir styrktaraðilum sem fjármagnar þá, og stærstu styrktaraðilarnir koma úr starfsemi tengdri lyfjageiranum.

Til er myndbandsrás á Bitchute sem heitir checkur6 og tekur saman myndbönd með fréttum fjölmiðla af þessum „skyndidauða“ fyrrum ungs og heilbrigðs fólks.

Hér má t.d. skoða myndband með yfir 300 umfjöllunum um dauðsföll, skaða og veikindi á tímabilinu frá lok september og til 25. október 2022.
50 dauðsföll þegar í VAERS vegna nýjasta „tvígilda örvunarskammtsins“
Þrátt fyrir þessi skyndilegu dauðsföll sem aukast dag frá degi er áfram verið að dreifa nýjasta „Covid-19 tvígilda örvunarskammtinum.“
Á þeim stutta tíma sem hann hefur verið í dreifingu hafa þegar verið tilkynnt 6.777 tilfelli um aukaverkanir og skaða af völdum hans í VAERS gagnagrunn Sóttvarnarstofnunar Bandaríkjanna (CDC), þar af hefur þegar verið tilkynnt um 50 dauðsföll.

Frá því desember 2020, þegar fyrst var byrjað að dreifa hinum svonefndu COVID-19 „bóluefnum“, er heildarfjöldi allra tilkynninga um aukaverkanir vegna allra COVID-19 „bóluefnanna“ nú orðinn 1.453.323, þar af hefur verið tilkynnt um 31.818 dauðsföll.

Líklega er skaðinn sem COVID-19 „bóluefnin“ hafa valdið mun meiri, þar sem almennt er talið að rétt um 1% skaða og dauðsfalla vegna bóluefna sé tilkynntur í VAERS gagnagrunninn.

Þá er það sláandi staðreynd að 62% allra tilkynninga í VAERS undanfarin rúm 32 ár, eða síðan gagnagrunnurinn var stofnsettur árið 1990, eru vegna COVID-19 sprautanna.

Þá hafa 77% allra dauðsfalla vegna bóluefna sem tilkynnt hafa verið í VAERS gagnagrunninn síðan 1990, orðið frá því í desember 2020 eða frá því fyrst var byrja að sprauta fólk með COVID-19 mRNA tilraunabóluefnunum.

Þrátt fyrir þetta halda stjórnvöld eins og t.d. hér á Íslandi því enn fram að þessar mRNA COVID-19 sprautur séu „öruggar og áhrifaríkar og að mRNA tilraunaefnin hafi ekkert að gera með öll þessi „óvæntu dauðsföll“.  Á meðan fólk trúir þessu mun það mæta og láta sprauta sig, óvíst er um afleiðingarnar.

Skildu eftir skilaboð