Upplýsingaleifturstríð Úkraínumanna

frettinArnar Sverrisson, Pistlar1 Comment

Eftir Arnar Sverrisson:

Teymi vísidamanna við óháða stærðfræðideild háskólans í Adelaide í Ástralíu gerði á dögunum gagnmerka rannsókn í áróðursfræðum.

Skoðuð voru 5.203.746 tíst, bæði send af sjálfvirkum forritum eða tölvuyrkjum („forrit sem vinnur tiltekin verk fyrir notanda eða annað forrit eða líkir eftir mannlegu atferli,“ segir Snara) og ekta notendum.

Niðurstaðan var á þá leið, að 90.2% þeirra voru Úkraínuholl, en undir 7% Rússaholl. Inntaksgreining sýndi, að tístin miðuðu að því að vekja angist í brjóti viðtakenda.

Fræðimennirnir dást að faglegum undirbúningi þessa leifturstríðs og undrast, hversu aftarlega á merinni Rússar eru í samanburði. Það taka félagar þeirra við Miðstöð öryggisrannsókna í Sviss (Centre of Security Studies in Switzerland) undir.

Þegar Rússarnir tóku seint um síðir við sér, hafði Twitter snör handtök og bannaði rúma 100 „reikninga“ úr þeirra herbúðum. Úkraínska öryggisþjónustan gerði í sömu andrá fimm rússnesk „netyrkishús“ (bot farms) óstarfshæf.

Það er svo sem ekki furða, að Úkraínumenn séu góðir netáróðursmenn. Bandaríkin hafa lagt um 40 milljónir dala í verkefnið og nýlega steðjaði nýstofnað „Skyndinetviðbragðsteymi Evrópusambandsins“ (European Union cyber rapid response team) þeim til aðstoðar. Það bandaríska lagði þegar lagt gjörva hönd á plóg.

One Comment on “Upplýsingaleifturstríð Úkraínumanna”

Skildu eftir skilaboð