Megum við fá meira að heyra?

frettinJón Magnússon, Pistlar, StjórnmálLeave a Comment

Jón Magnússon skrifar:

Borðsálmur listaskáldsins góða Jónasar Hallgrímssonar þótti athygliverður þar var tæpt á hlutum án þess að greina ítarlega frá. Þeir sem hlustuðu segja: "Hvað er að tarna /Hvað sagðirðu þarna / Mættum við fá meira að heyra.

Í frábæru Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins í dag segir höfundur m.a. 

"Minnihlutinn í Reykjavík hefur einstakt lag á að fjalla eingöngu um óskiljanleg smáatriði. Forystumaður listans tekur meira að segja þátt í leynifundum við borgarstjórann um að koma lóðum, sem ekki lengur eru notaðar í upprunalegum tilgangi, í hendur vafasamra. Slíkum lóðum ber að skila. En í staðinn er verið að pukrast með eitt versta brask í sögu borgarinnar."

Nokkru síðar segir: 

"Sjálfstæðisflokkurinn hefur falið af sinni hálfu borgarfulltrúanum sem er vanhæfastur allra til að gegna þeim trúnaði fyrir félaga sína að fá að fylgjast með í lokuðum herbergjum hvað Dagur er að braska. Sveitarfélag gerir ekki þúsunda milljóna gjafagerninga á bak við luktar dyr."

Að lokum segir: 

"En það færi vel á að setja vandaða menn utan borgarstjórnar í að rannsaka það sem þarna fer fram í þaula."

Hér er vísað til grafalvarlegra hluta og pólitískrar spillingar,pólitískra og persónulegra hrossakaupa, þar sem borgarstjóri og forustumaður Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur standa sameiginlega að því að gefa ákveðnum aðilum þúsundir milljóna. Taka verður undir með bréfritara, að í slíku tilviki færi vel á að utanaðkomandi aðilar rannsökuðu þessi mál í þaula. 

Þá væri fróðlegt að sjá hvort að fjölmiðlar t.d.meginstraumsfjölmiðillinn RÚV sem hleypur aftur og aftur upp með meinta pólitíska spillingu, þó hún sé engin, áttar sig á því að hér er verðugt rannsóknarefni sem þarfnast umfjöllunar í fréttatímum, Kveik og Kastljósi. Þúsunda milljóna gjafagerningur til ákveðinna útvaldra er mun stærra og alvarlegra mál en hnökrar við framkvæmd sölu hluta í Íslandsbanka.

En þá er spurning hvort RÚV telur við hæfi að atast út  í vin sinn borgarstjórann jafnvel þó að það mundi þýða afhjúpun spillingar sem tæki einnig til forustu Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn.

Fróðlegt verður að sjá hvort að fréttaelítan og stjórnmálamenn þ.m.t.  borgarstjórnarfulltrúar í Reykjavík láti til skarar skríða eða þegi þetta grafalvarlega mál í hel.Fari svo, þá á við lokastefið í Borðsálmi listaskálsdins góða og nauðsyn brýn að þagga niður í höfundi Reykjavíkurbréfs: 

"Hættu nú herra/ Hér mun koma verra/ sem þér er betra að þegja um en segja um."

Skildu eftir skilaboð