‘The Real Thing’ – COP27

frettinJón Magnússon, Loftslagsmál1 Comment

Eftir Jón Magnússon hæstaréttarlögmann:

Fjölmennasta og íburðarmesta veisla ársins, er og verður lúxus loftslagsráðstefnan í Egyptalandi Cop27. Þangað komu um 40 þúsund manns nánast allir kostaðir af skattgreiðendum og neytendum. Meir en 400 einkaþotur lentu með þátttakendur á ráðstefnunni og ótölulegur fjöldi risaþotna sá um að flytja restina. 

Þátttakendurnir eiga það sameiginlegt að hafa stórkostlegar áhyggjur af kolefnissporinu þínu en engar af sínu. 

Hin nýja stétt, nomen klatura, nýaldarinnar þarf ekkert að spara enda borgaði Kóka Kóla fyrir herlegheitin.

Auglýsingaskilti Kóka Kóla eru iðulega reisulegustu mannvirkin í fátækustu hlutum heimsins. "The real thing" gnæfir yfir opnum klóökum í borgum og bæjum þriðja heimsins. Hjálpin mikla. Þá skiptir heldur máli að geta gripið í flösku sem hefur að geyma "the real thing".

Þátttakendum á Cop27 fannst ekkert að því að Kóka Kóla borgaði undir rassinn á þeim, þó það hafi lengi verið talið einkennismerki hins óhefta kapítalisma. Ekki þarf lengur að vandræðast yfir því þegar þeir ofurríku eru gengnir í lið með bullinu, sem þeir hafa að sjálfsögðu fundið leið til að græða á.

Svandís Svavarsdóttir og trúarsystkini hennar í loftslagskirkjunni brostu breitt og slógu taktfast, að heimurinn væri að farast ef ekki yrði gripið til þess að rýra lífskjör fólks í Evrópu og N-Ameríku. 

Hin nýja stétt umhverfisverndarsinna gerði engar athugasemdir við það,að árlega framleiðir Kóka Kóla 120 milljarða einnota plastik flaskna. Þessar einnota plastik flöskur 120.000.000.000 valda mikilli eyðileggingu, mengun og  eyðileggingu á lífríkinu, ekki síst þar sem auglýsingaskiltin um "the real thing" gnæfa yfir mannlífinu.

Fyrirheitið á auglýsingaskiltinu um hinn sanna unað og velferð, sem falin er í einnota plastflösku er álíka vitlaust og annað sem gerðist á þessari ráðstefnu hinnar sjálfhverfu nýju stéttar loftslagskirkjunnar. 

Síðustu línurnar í kvæði Steins Steinars um Kommúnistaflokk Íslands, in memoriam, með lítilli breytingu eiga jafnvel við um gildi tildurráðstefnunnar Cop27

Á gröf hins látna blikar drykkjartunna frá Kóka Kóla Company.

One Comment on “‘The Real Thing’ – COP27”

  1. Góða og umhverfisvæna fólkið má menga! Eða eins og John Kerry sagði þegar hann var spurður um einkaþotuna, ´Ég vinn mikilvæga vinnu og þarf að ferðast.´ Hræsnin er hrópandi!

Skildu eftir skilaboð