Daníel Ágúst: beint á fm957 með lagið!

frettinTónlistLeave a Comment

Tónlistarmaðurinn og Idol keppandi Birgir Örn sem gengur undir listamannsnafninu Bixxi gefur út lagið sitt ,,Found Each Other’’ sem hann tók í fyrsta þætti af beinni útsendingu Idol Íslands. 

Birgir vakti mikla athygli hér á landi í gegnum keppnina og hafa skoðanir verið á alla vegu, en sjálfur segist Birgir hafa mest fundið fyrir stuðningi og tilhlökkun fyrir því að lagið hans kæmi út.

Birgir átti sér draum um að fá lag í spilun á fm957 áður en hann steig á svið og sá draumur rættist á hans loka kvöldi þegar Daníel Ágúst einn af dómurum keppninnar segir ,,Beint á fm957 með lagið!’’. Teymi Fm957 hikuðu ekki við að hafa samband við Birgir, og var lagið frumsýnt hjá þeim Birgi að mikilli gleði og þakklæti.

,,Lagið sjálft er um unga og villta ást, ástin sem hangir á bláþræði en er samt svo spennandi að báðir aðilar vilja ekki að hún endi’’ Segir Birgir.

Birgir á sviðinu í Idol

Birgir er tónlistarmaður í húð og hár og hefur verið að skapa tónlist og þróast í þann listamann sem hann er í dag frá 11 ára aldri, og tekið ýmis nám til að læra fræðina á bak við tónsmíði og tónvinnslu. Birgir missti föður sinn óvænt árið 2017, og áttaði sig á því hversu stutt lífið getur verið og tekið þá ákvörðun um að elta sína drauma, og hefur ekki litið til baka síðan.

Í dag er Birgir einn af eigendum framleiðslu og markaðssetningar fyrirtækisins Flame.is þar sem að hann vinnur einnig með ýmsu tónlistarfólki hér á landi.

Þú getur hlustað á lagið hans Found Each Other á Spotify hér.

Sjálfur segist Birgir vera að vinna mikið af nýrri tónlist, hægt er að fylgjast með Birgir á samfélagsmiðlum hans.

Instagram: Bixximusic
Tiktok: Bixximusic

Skildu eftir skilaboð