Eftir Geir Ágústsson:
Tilnefningar til friðarverðlauna Nóbels eru að leka og er þar margt gott að finna. Meðal þeirra sem geta tilnefnt einstaklinga til verðlaunanna eru fyrrverandi Nóbelsverðlaunahafar, þingmenn og ráðherrar allra landa í heiminum og ákveðnir háskólaprófessorar. Betri fulltrúa friðar á Jörðu er varla hægt að hugsa sér.
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, eru meðal þeirra sem tilnefndir eru til friðarverðlauna Nóbels í ár. Allir eiga það sameiginlegt að siga vopnuðum brjálæðingum á óbreytta borgara.
Meðal fyrri verðlaunahafa má nefna Barack Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Hann hafði varla tekið við verðlaunafénu þegar hann hóf röð innrása og hernaðaraðgerða sem murkuðu lífið úr fjölda einstaklinga og þær aðgerðir halda enn þann dag í dag áfram að valda dauða og hörmungum fyrir venjulegt fólk.
Einnig má nefna Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, en boðskapur hans og annarra álíka spámanna heimsenda og hnatthlýnunar hafa komið í veg fyrir að fátækir Afríkubúar, meðal annarra, geti fengið aðgang að stöðugri raforku (með notkun jarðefnaeldsneytis) og lyft sér úr sárustu fátæktinni.
Hin svokölluðu friðarverðlaun Nóbels eru smátt og smátt að snúast upp í andhverfu sína. Þau eru hin alþjóðlega íslenska fálkaorða (skammarverðlaun), veitt þeim sem kitla mest taugar fyrrverandi Nóbelsverðlaunahafa, þingmanna og ráðherra allra landa í heiminum og ákveðinna háskólaprófessora.
Þeirra sem steyptu mörgum í glötun í nafni veiru, ætla sér að steypa mörgum í glötun í nafni loftslags, hafa fundið blóraböggul í Rússlandi fyrir öllu sem aflaga fer og vilja mögulega planta örflögu í hausinn á þér, útbúin bólusetningarvottorði og hæfilegri flokkun á skoðunum þínum, svona ef ske kynni að þú viljir taka lán eða kaupa steik sem er skorin úr alvöru, ferfættu dýri.
One Comment on “Stríðsherraverðlaun Nóbels”
,,Hin svokölluðu friðarverðlaun Nóbels eru smátt og smátt að snúast upp í andhverfu sína.“
Eins er með hin svokölluðu bókmenntaverðlaun Nóbels.