Árni Freyr Einarsson sem hlaut alvarlegan skaða eftir svokallaðar Covid „bólusetningar“ er á leið í hjartaþræðingu.
Þessu segir eiginkona hans, Þorbjörg Sólbjartsdóttir íþróttafræðingur, frá á Facebook í gær: „Síðustu tvö ár eftir að Árni Freyr fór í bólusetningu hafa verið honum hræðilega erfið. Myndirnar sem ég set með þessum status sýna lífið hans fyrir skaðann sem hann varð fyrir. Ég veit hreinlega ekki hvað ég á að segja, því ég verð svo reið yfir því hvað hann er búinn að þurfa að upplifa mikla lífsskerðingu eftir þetta! Við vonum að hann endurheimti heilsuna sína aftur, og að hann geti farið að vinna fulla vinnu og við getum farið að njóta lífsins og allra áhugamálanna okkar aftur saman.“
Fréttin sem tók viðtal við Árna Frey í desember 2021, óskaði eftir leyfi þeirra hjóna til að birta nýjustu fréttir um málið. Þau samþykktu og sagði Þorbjörg: „Já, Fréttin er eini miðilinn sem vill fjalla um þessi skaðlegu bóluefni.“
Hér á eftir er endurbirt viðtal sem tekið var við Árna Frey í desember 2021. En síðan þá hefur Árni farið 2-3 sinnum á bráðamóttökuna (alls 5-6 sinnum) og í ótal læknisheimsóknir, skoðanir og rannsóknir. Hann hefur einnig leitað réttar síns og er með lögfræðing til að sækja þær skaðabætur sem ríkið samþykkti með lagabreytingum að greiða þeim sem yrðu fyrir tjóni af völdum Covid bóluefna, sem er ný tegund „bóluefna“ (líftæknilyf) og höfðu aldrei áður verið notuð á mannfólki. Moderna og Pfizer „bóluefnin“ eru hvorutveggja svokölluð mRNA lyf.
Læknar hefðu þó mátt eiga von á þeim fylgikvillum og aukaverkunum sem fylgja mRNA COVID-19 bólusetningum á grundvelli gagna og rannsókna sem ná 15 ár aftur í tímann samkvæmt bandaríska lækninum Dr. Elizabeth Lee Vliet.
Glímir við hjarta- og brjóstverki eftir bólusetningu – hefur þrisvar farið á bráðamóttökuna
Viðtal frá 29. desember 2021
Árni Freyr Einarsson er 49 ára fjölskyldumaður og fór í sína fyrstu Covid bólusetningu í maí og þá seinni í lok júní, bæði skiptin með Moderna.
Árni vildi deila reynslu sinni af alvarlegum aukaverkunum og segir í samtali við Fréttina að hann hafi fljótlega byrjað að finna til eftir síðari sprautuna.
,,Ég fann fljótlega fyrir óþægindum eftir seinni bólusetninguna en tengdi það ekki strax við bóluefnið. Við fjölskyldan fórum í um það bil mánaðarlangt ferðalag um landið eftir síðari bólusetninguna og taldi ég að óþægindin gætu stafað af því að hafa sofið illa. Ég fann fyrir verkjum, stingjum og þyngslum fyrir brjósti. Það var ekki liðinn mánuður frá síðari sprautunni þar til ég var byrjaður í rannsóknum og taldi heimilislæknirinn okkar að þetta væri tengt bólusetningunni.“
En hvernig var heilsan áður en þú fórst í bólusetningu?
,,Fyrir bólusetningu æfði ég fimm til sex sinnum í viku og stundum tvisvar á dag. Ég hafði aldrei leitað til læknis vegna hjartavandamála en síðustu þrjá mánuði hef ég versnað mikið; verkir alla daga, oft á dag og ég sef stundum ekki fyrir verkjum,“ segir Árni Freyr.
,,Ég hef farið þrisvar upp á bráðamóttöku, eitt skiptið með sjúkrabíl eftir að hafa farið í stuttan göngutúr. Á heimleiðinni fannst mér eins og ég gæti dottið niður vegna mæði og svima og treysti mér ekki til að ganga heim. Ég er búinn að fara í ómskoðun af lungunum, þolpróf og blásturspróf sem kom mjög illa út en það virðist vera komin einhverskonar lömun í þindina þar sem ég hef ekki kraft í að blása frá mér.“
,,Næstu rannsóknir sem áttu að fara fram í vikunni þ.e. sneiðmynd af hjarta verða að bíða þar sem ég greindist með Covid á aðfangadag og er því lokaður af í 10 daga, sem betur fer einkennalaus en þjáður og með mikla vanlíðan vegna verkja. Ég hef sem betur fer mætt miklum skilningi í vinnunni og hef getað unnið heima, en ekki haft fulla starfsorku síðastliðna tvo mánuði.“
,,Ég þekki orðið nokkur nærtæk dæmi um aukaverkanir af bólusetningum og finnst vanta opna umræða um málið og þá hvað er til ráða varðandi aukaverkanir og hvernig hægt er að minnka hættuna á þeim hjá hraustum almenningi. Heimilislæknirinn okkar var til dæmis með getgátur um að tengsl gætu verið milli aukaverkana og hjarta sem væri í góðri þjálfun.“
,,Við þurfum líka að vita hver ber kostnaðinn vegna allra þessara rannsókna og hvar tryggingafélögin standa varðandi óafturkræfan skaða. Við vitum sem víst að það verða greiddar út dánarbætur en ef það er sjúkdómur af völdum bólusetninga þá þarf málið að fara í gegnum kærunefnd,“ bætti Árni við.
Nú eru að fara af stað bólusetningar fimm til ellefu ára barna, hafið þið ákveðið hvað þið ætlið að gera með ykkar börn?
,,Við hjónin erum að sjálfsögðu ekki áfjáð um að láta sprauta börnin okkar meðan hættan af sprautum er ekki ljós fyrir börn. Auðvitað viljum við það besta fyrir börnin og heilsu þeirra, það hljóta allir að vera sammála um. Við höfum aldrei verið á móti bólusetningum en þar sem þessi lyf eru ennþá í tilraunafasa þá setur maður spurningamerki við það. Tvítug dóttir okkar sem er tvíbólusett frá því í sumar hefur síðan þá glímt við síþreytu og höfuðverk.“
,,Ég skil vel að andleg heilsa landans er ekki á góðum stað, það eru allir orðnir leiðir á þessu ástandi, maður heldur alltaf að endamarkið sé að nálgast en svo kemur alltaf eitthvað nýtt. Tekjur heimilanna og þar eru okkar engin undantekning, hafa lækkað og á meðan hækkar vöruverð og því miður það sem fólk hefur á milli handanna minnkar óðfluga. Það veldur einnig kvíða.“
,,Þegar ég losna úr einangrun þarf ég að mæta í næstu rannsókn út af hjartanu og ef það er komin skemmd í hjartavefinn þá vitum við að hún er óafturkræf. Það er rosalega erfitt að vera í þessari stöðu og vita ekki hvað er framundan með að ná heilsu á ný.“
Árni Freyr vildi bæta því að ýmislegt annað er til að hafa áhyggjur af í samfélaginu í dag, eins og til dæmis sjálfsvíg.
,,Núna hafa til að mynda tæplega 100 manns tekið sitt eigið líf á Covid tímabilinu, sem er mjög alvarlegt,“ sagði Árni Freyr að lokum.
One Comment on “Árni Freyr á leið í hjartaþræðingu vegna hjartaskaða eftir Covid „bóluefnin“”
„Já, Fréttin er eini miðilinn sem vill fjalla um þessi skaðlegu bóluefni.“ þökk sé ykkur hjá Fréttinni….. Ja,,,,,kversvegna skildi það nú vera að megin frétta miðlarnir þegja um þetta …….þökk sé ykkur hjá Fréttinni