Kanadíska myndbandaveitan Rumble hefur boðið Joe Rogan 100 milljón dollara samning til að ganga til liðs við veituna í von um að ná þessum vinsæla hlaðvarpara frá Spotify.
„Við stöndum með þér, gestum þínum og óteljandi aðdáendum í von um alvöru samtal. Því viljum við bjóða þér 100 milljón ástæður til að gera heiminn að betri stað,“ skrifaði forstjóri Rumble, Chris Pavlovski, í færslu sem deilt var á Twitter í gær.
„Hvað með að þú komir með alla þína þætti, bæði gamla og nýja, án nokkurrar ritskoðunar, fyrir 100 milljónir dollara á fjórum árum? Þetta er tækifæri okkar til að bjarga heiminum. Og já, þetta er algjörlega lögmætt.“
Tilboðið frá Rumble: