Serbneski tenniskappinn Novak Djokovic segist ekki vera á móti bólusetningum almennt og hafi verið bólusettur sem barn, en segist aftur á móti ekki ætla að láta sprauta sig með Covid bóluefnunum og hann sé tilbúinn að missa af stórmóti frekar en að undirgangast bólusetningu.
Djokovic segir að einstaklingar eigi að hafa frelsi um hvort þeir láti sprauta einhverju í sig eða ekki.
Djokovic veitti BBC viðtal þar sem hann útskýrir sín sjónarmið en það hefur vakið mikla athygli að Djokovic er óbólusettur gegn kórónuveirunni og var honum t.d. vísað frá Ástralíu vegna þess og handtekinn við komuna þangað.
Tenniskappinn segir að líkami hans sé einkamál og sem íþróttamaður í heimsklassa hafi hann kosið hingað til að hafna því að bóluefni við kórónuveirunni sé sprautað í hann. Bólusetning er val og hans mál að ákveða það fyrir sjálfan sig, en um leið segist kappinn hafa skilning á því að alls staðar í heiminum sé fólk að reyna að binda endi á heimsfaraldur.
Djokovic segist vera tilbúinn að fórna stórum tennismótum eins og Wimbledon sem fram fer í sumar.
One Comment on “Djokovic mun ekki láta bólusetja sig – sleppir frekar mótum”
Það var enginn heimsfaraldur, annar en lyga og blekkinga faraldur.
Ég var líka bólusettur sem barn en er samt á móti þeim. Hvað koma bólusetningar málinu við? Þetta er ekki einu sinni bólusetning.
Ég er byrjaður að lesa nýjusru bók Kennedys. Mæli með henni. Það hefðu ekki margir látið sprauta sig hefðu þeir haft þær upplýsingar sem koma fram í þeirri bók.